Veiðimenn veiði ekki meira en tíu rjúpur hver
Rjúpnaveiðitímabilið verður 1.-30 nóvember. mbl.is
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur ákveðið að fyrirkomulag rjúpnaveiða í haust verði með óbreyttu sniði frá fyrra ári og standi frá 1. til 30. nóvember. Veiðar verða heimilaðar fimmtudaga, föstudaga, laugardaga og sunnudaga. Mælst er til þess að hver veiðimaður skjóti ekki fleiri en tíu fugla.
Sölubann á rjúpum og rjúpnaafurðum verður áfram í gildi. Ákvörðunin byggir á mati Náttúrufræðistofnunar Íslands á veiðiþoli rjúpnastofnsins og mati Umhverfisstofnunar á heildarveiði árið 2007.
Óvænt þróun hefur orðið í rjúpnastofninum að mati Náttúrufræðistofnunar. Fækkunarskeið er afstaðið eftir aðeins tvö ár, kyrrstaða er um landið vestanvert en á austari hluta lands er fjölgun í stofninum. Að mati stofnunarinnar gætir hér hugsanlega áhrifa af þeirri miklu sóknarskerðingu sem ákveðin var síðastliðið haust en veiðidögum var þá fækkað í átján. Einnig er talið að veiðimenn hafi hlýtt hvatningu um að sýna hófsemi í veiðum.
Í ljósi þessa hefur umhverfisráðherra ákveðið að gera engar breytingar á fyrirkomulagi veiðanna og verður það því sem hér segir: Veiðidagar verða alls átján á tímabilinu 1. til 30. nóvember. Veiðar verða heimilaðar fimmtudaga, föstudaga, laugardaga og sunnudaga. Sölubann gildir áfram á rjúpu og rjúpnaafurðum. Áfram verði friðað fyrir veiði á ákveðnu svæði á Suðvesturlandi (kort á slóðinni www.umhverfisraduneyti.is/media/frettir/kortRjupa.JPG) Rjúpnaskyttur verða sem fyrr hvattir til að stunda hófsamar og ábyrgar veiðar. Virkt eftirlit verður með veiðunum á landi og úr lofti eftir því sem kostur er.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 12. september 2007, Innlent Áfram sölubann á rjúpum og rjúpnaafurðum
- Sunnudagur, 25. október 2009, Innlent Rjúpnaveiði brátt heimil
- Föstudagur, 30. október 2009, Innlent Rjúpnaskyttuleit á fyrsta degi
- Laugardagur, 1. desember 2007, Innlent Rjúpnaveiði dræmari en í fyrra
- Fimmtudagur, 28. febrúar 2008, Innlent Sex stóriðjuver enn í deiglunni
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































