Fjölmenni hitaði upp fyrir Laufskálarétt

Stefán bóndi á Keldulandi skemmti sér vel í höllinni ásamt …
Stefán bóndi á Keldulandi skemmti sér vel í höllinni ásamt vinkonum sínum sem eru frá vinstri Inga B.Ólafsdóttir,Rósa María Stefánsdóttir og Kristbjörg Ingólfsdóttir. Örn Þórarinsson

Mikið fjölmenni var í reiðhöllinni Svaðastöðum  á Sauðárkróki í gærkvöld en þar voru nokkrir gæðingar teknir til kostanna, bæði í sýningum og keppni. Hápunktur kvöldsins var skeiðkeppni þar sem riðið var í gegnum höllina. Þar reyndist hinn kunni knapi  Sigurður Sigurðarson sigursæll sat hrossin tvö sem lentu í tveimur efstu sætunum í keppninni. 

Þessi samkoma er orðið hefðbundin og er ávallt fjölsótt, enda ávallt fjöldi fólks kominn norður til að vera þáttakandi í stóðréttum.   Laufskálarétt í Hjaltadal er ávallt síðasta laugardag í september og hún hefur stundum veri'ð kölluð ,,drottning stóðréttanna" a.m.k. sækir gríðarlegur mannfjöldi í réttina.
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert