Leiður yfir því hvernig komið var fram við okkur
Eftir Björgvin Guðmundsson
bjorgvin@mbl.is
„Ég tel að Stoðir verði ekki gjaldþrota. Félagið hefur orðið fyrir miklu höggi í kjölfar grimmra aðgerða Seðlabanka Íslands gagnvart Glitni. Við munum nú nota tímann til að endurskipuleggja reksturinn og bregðast við breyttum aðstæðum,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs.
Vegna þeirrar ákvörðunar Seðlabankans að kaupa 75% eignarhlut í Glitni rýrnaði verðmæti hluthafa í bankanum um rúma 200 milljarða króna. Þar af rýrnaði hlutur Stoða, sem áður hétu FL Group, um 60 milljarða króna. Fullyrtu margir í gær að þessi ákvörðun myndi gera út af við Stoðir og hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir Baug í kjölfarið, sem stærsta hluthafa í Stoðum.
Jón Ásgeir viðurkennir að það myndi hafa slæm áhrif á Baug og fleiri fjárfesta ef Stoðir yrðu gjaldþrota. Hins vegar veiti greiðslustöðvun eigendum ráðrúm til aðgerða. Hann telur mögulegt að leggja fram fullnægjandi tryggingar fyrir lánum sem notuð voru til að fjármagna kaup á hlutabréfum í Glitni, sem nú hafa hrunið í verði. Til þess verði notaðar eignir sem enn séu ekki veðsettar.
Hann bendir á að ástandið í heiminum nú um stundir sé háð gríðarlegri óvissu og óvarlegt að fullyrða um nokkurn skapaðan hlut.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var Jón Ásgeir meyr á fundi með starfsfólki Stoða í gærmorgun. Aðspurður segir hann: „Ég var leiður yfir því hvernig komið var fram við okkur.“
Innlent »
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 30. september 2008, Innlent Telur Stoðir ekki fara í þrot
- Þriðjudagur, 17. mars 2009, Innlent Víðtæk tengsl við Baug
- Miðvikudagur, 1. október 2008, Innlent Jón Ásgeir: Sagði að þetta yrði feigðarför
- Föstudagur, 10. október 2008, Innlent Fjöldi fyrirtækja í hættu
- Þriðjudagur, 7. október 2008, Innlent Lánstraust Íslendinga í hættu
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“





































