Lífeyrissjóðir leita skjóls
Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is
Lífeyrissjóðir verða fyrir verulegum áföllum vegna þeirrar kreppu sem gengur yfir fjármálamarkaði. Nú síðast rýrnar eignarhlutur tveggja af stærstu sjóðunum um nokkra milljarða kr. eftir aðkomu ríkisins að Glitni. Enginn vafi leikur þó á því að staða lífeyrissjóðanna er eftir sem áður mjög traust. Þetta er samdóma álit viðmælenda hjá lífeyrissjóðum.
Hrein eign allra lífeyrissjóða var tæpir 1.700 milljarðar um seinustu áramót og í lok júlí hafði eign þeirra aukist í rúma 1.800 milljarða. Sjóðirnir hafa í stórum stíl flutt eignir sínar úr áhættusamari bréfum yfir í tryggari fjárfestingar. ,,Menn eru klárlega að færa sig í stórum stíl yfir í skuldabréf með föstum tekjum og hafa verið að flytja fjármagn erlendis frá hingað til lands að einhverju marki vegna ástands á mörkuðum og gengis krónunnar,“ segir Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða.
Fleiri taka undir að sjóðirnir hljóti að endurmeta fjárfestingarstefnu sína. Þó er líka á það bent að þeir verði að dreifa áhættunni og það væri full mikil áhætta tekin að vera með alla fjármuni lífeyrissjóðs „hér í þessu litla hagkerfi okkar. Við verðum að dreifa þessu og fjárfesta líka erlendis,“ segir Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gildis.
Hann segir að vissulega hafi miklar lækkanir átt sér stað á hlutafjármörkuðum allt þetta ár og kaup ríkisins á Glitni hafi valdið meiri lækkun á einum degi en menn hafi áður séð. Á það beri þó að líta að tap sjóðsins vegna 1,3% eignarhlutar Gildis í Glitni sé í raun mjög mjög lítið brot af eignasafni sjóðsins. Eignirnar voru um 238 milljarðar um seinustu áramót og þar af innlend hlutabréf um 50 milljarðar.
Árni leggur áherslu á að þessi atburður breyti engu um tryggingafræðilega stöðu lífeyrissjóðsins. Maríanna Jónasdóttir, formaður stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, segir enga launung á því að lækkanirnar á mörkuðum komi illa við eignasafn sjóðsins. Þegar lækkanir eiga sér stað á hlutabréfaverði á örfáum dögum leiði það til skerðingar á ávöxtun til skamms tíma litið „en við höldum í vonina um að þetta muni breytast þegar til lengri tíma er litið,“ segir hún. Maríanna leggur áherslu á að fólk þurfi ekki að óttast um lífeyrisréttindi sín. Eignir sjóðsins voru um áramót 317 milljarðar kr.





































