Milljóna tap starfsmanna
Starfsmenn Glitnis töpuðu margir hverjir milljónum króna þegar ríkið eignaðist 75 prósent í bankanum um síðastliðna helgi. Það gerir áhyggjur starfsmanna af framvindu mála enn meiri en ella, að mati Friðberts Traustasonar, formanns Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja.
Dæmi eru um að starfsmenn hafi tapað tugum milljóna króna.
Friðbert segir óvissutíma fara illa í starfsmenn Glitnis sem og annarra banka. „Hljóðið í starfsfólki er ekki gott. Margir hafa áhyggjur af stöðunni sem blasir við á íslenskum fjármálamarkaði og þær áhyggjur eru skiljanlegar. Þó að miklir peningar séu í spilunum þá þurfa allir að átta sig á því, stjórnmálamenn og aðrir, að líf fólks byggist á atvinnu og tekjum. Eins og sakir standa er töluvert öryggisleysi á fjármálamarkaði.“
Uppsagnir ekki fyrirhugaðar
Þrátt fyrir að ríkið hafi yfirtekið Glitni er ekki gert ráð fyrir því að uppsagnir séu fyrirhugaðar hjá bankanum. Glitnir greip fyrr á árinu til sparnaðaraðgerða, meðal annars með uppsögnum á þriðja hundrað starfsmanna. Þá lækkuðu stjórnarmenn bankans í launum auk þess sem mánaðarlaun forstjórans, Lárusar Weldings, lækkuðu um helming, úr fimm milljónum í 2,5 milljónir.Friðbert segir starfsmenn fjármálafyrirtækja eiga rétt á því að upplýsingagjöf frá fjármálafyrirtækjunum sé skilvirk og góð á óvissutímum eins og núna. „Það hefur borið á því að starfsfólk í fjármálafyrirtækjum hafi kvartað yfir því að fá ekki nægilega góðar upplýsingar um stöðuna. Það sem er að gerast á fjármálamörkuðum er í raun alvarlegur heimsviðburður. Það skiptir miklu máli að starfsmenn séu upplýstir um hvað er að gerast á hverjum tíma. Mér finnst stundum hafa borið á því að upplýsingagjöf um raunverulega stöðu hafi verið ábótavant, án þess að ég sé að tala um eitthvert eitt fyrirtæki umfram annað í þeim efnum.“
Margir starfsmenn fjármálafyrirtækja hafa haft stóran hluta tekna sinna í bónusgreiðslum sem hafa minnkað mikið samhliða vondri stöðu á fjármálamörkuðum. Friðbert segir einnig að fólk sem hafi miklar tekjur, og hafi spennt bogann hátt á meðan tekjurnar voru háar, þurfi að endurskoða stöðu sína og halda að sér höndum. „Það reynir á fólk og það þarf að hlúa að sínum fjárhag og sýna fyrirhyggju. Það á við um starfsfólk fjármálafyrirtækja eins og aðra landsmenn.“
Bloggað um fréttina
-
Norðanmaður Lárus "bara" með 2,5 milljónir á mánuði ! -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Ekki vorkenni ég því fólki -
Kristín Björg Þorsteinsdóttir Já - nú er gott að vera láglaunamanneskja -
Eiríkur Stefán Eiríksson Fá lykilstjórnendur ekki örugglega greitt í evrum? -
Ari Guðmar Hallgrímsson Er Seðlabankinn kominn í fjárhættuspil??? -
Vignir Arnarson Já ok fær hann ekki nema 2.5milljónir á mánuði greyið ...
Innlent »
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 1. október 2008, Innlent „Skelkað og dofið“
- Fimmtudagur, 19. mars 2009, Innlent 1.300 bankamönnum sagt upp
- Mánudagur, 13. júlí 2009, Innlent Tugir launakrafna í farvatninu
- Fimmtudagur, 1. maí 2008, Innlent Á annað hundrað bankamenn hættir
- Fimmtudagur, 8. janúar 2009, Innlent Baktrygging tekin af starfsmönnum
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“




































