Lundinn settur á alþjóðlegan gátlista

Lundinn við Atlantshaf er talinn í hættu.
Lundinn við Atlantshaf er talinn í hættu.

Atlantshafslundinn er í hópi tuttugu sjófuglategunda sem settur hefur verið á gátlista alþjóðlegs samnings um afrísk-evrasískra sjó- og vatnafarfugla  en sáttmálinn er í tengslum við Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna.

Í tilkynningu frá SÞ segir, að stærsti stofn Atlantshafsslundans sé á Íslandi en  Ísland eigi ekki aðild að samkomulaginu eitt örfárra Evrópuríkja en Náttúrufræðistofnun hafi þó veitt stofnun sem sér um framkvæmd sáttmálans upplýsingar um lundastofninn á Íslandi.

Til skamms tíma var lundastofninn á Íslandi sá eini sem ekki var á niðurleið en blikur kunna að vera á lofti. Samkvæmt upplýsingum Náttúrufræðistofnunar hefur lundavarp brugðist fjögur ár í röð á Íslandi.
 
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert