Íhuguðu að slíta stjórnarsamstarfinu
Stjórnarráð Íslands Jim Smart
Samstarf ríkisstjórnarflokkanna hékk á bláþræði um tíma í gær vegna ástandsins í efnahagsmálum þjóðarinnar. Í allan gærdag funduðu ráðherrar innan ríkisstjórnarinnar um mögulegar aðgerðir gegn hruni krónunnar en gærdagurinn var einn sá svartasti í íslensku efnahagslífi.
Krónan náði nýjum lægðum, erlendar fjármálastofnanir hættu að versla með gjaldmiðilinn og gjaldeyrisforði þjóðarinnar að þrotum kominn. Einn þingmaður stjórnarflokkanna orðaði það sem svo að komið væri að „stóra stoppi og að neyðarástand ríkti í efnahagsmálum“. Þá virðist lítill skilningur vera meðal margra stjórnarmanna á því sem þeir kalla aðgerðaleysi Seðlabankans og krafa um aðgerðir varð háværari eftir því sem á leið vikuna.
Innan Samfylkingar hefur einnig verið óánægja með aðdraganda Glitniskaupa ríkissjóðs. Heimildarmenn 24 stunda innan Samfylkingar og ríkisstjórnar segja óánægjuna hafa magnast þegar á leið vikuna og að steininn hafi tekið úr þegar Davíð Oddsson seðlabankastjóri mætti á ríkisstjórnarfund á þriðjudag og lagði til að tekin yrði upp þjóðstjórn og að hinir viðskiptabankarnir tveir yrðu þjóðnýttir.
Innan Samfylkingarinnar eru þrjú atriði helst rædd sem hugsanlegar lausnir á efnahagskreppunni: a) að lýsa yfir vilja til að sækja um aðild að ESB b) sækja um neyðarlán til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og c) reka Davíð Oddsson. Báru samfylkingarmenn þá von í brjósti fram eftir degi í gær að forsætisráðherra myndi í stefnuræðu sinni boða einhverjar lausnir.
Heimildir 24 stunda innan ríkisstjórnarinnar herma að um tíma hafi stjórnarsamstarfið hangið á bláþræði vegna þessa. Var mikið skrafað meðal ráðherra Samfylkingar í allan gærdag og var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir þátttakandi í þeim umræðum símleiðis. Engar lausnir hafa verið boðaðar enn en samfylkingarmenn vona að það verði þó gert fljótlega.
Bloggað um fréttina
-
Bjarni Kjartansson Ekki er úthaldið mikið, eða skuldar Samfó Baug svona mikið? -
Vilhjálmur C Bjarnason Frysta allt í nokkrar vikur..... -
-
Þórarinn Þ Gíslason NEI,FÓLK Í HJÓNABANDI Á AÐ FARA YFIR STÖÐUNA OG REYNA ... -
G. Tómas Gunnarsson Spuni, stjórnarslit og vöruskortur -
Friðrik Hansen Guðmundsson Vandi Sjálfstæðisflokksins -
Sigríður Laufey Einarsdóttir Stjórnarslit? -
-
Jón Halldór Guðmundsson Kemur ekki á óvart. -
Hallur Magnússon #9541 Sjálfstæðisflokkur og Vinstri grænir á leið í ríkisstjórn saman? -
Birgitta Jónsdóttir Svipþungi á alþingi í gærkvöldi -
Stefán Friðrik Stefánsson Eru stjórnarslit í uppsiglingu? -
Heimir L Fjeldsted Ótti Samfylkingar við þjóðstjórn límdi þau við stólana -
Björgvin Guðmundsson mbl.is:Það lá við stjórnarslitum -
Jóhann Elíasson Eru menn loksins að átta sig núna???? -
Bergur Thorberg Við söknum hagsýnnar húsmóður
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 26. janúar 2009, Innlent Baksvið: Þingvallastjórnina þraut örendið
- Föstudagur, 3. október 2008, Innlent Stjórn SUF krefst aðgerða í efnahagsmálum
- Fimmtudagur, 22. janúar 2009, Innlent Stjórnarsamstarfið hangir á bláþræði
- Föstudagur, 11. apríl 2008, Innlent Ungir framsóknarmenn kalla eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar
- Föstudagur, 10. júlí 2009, Innlent Þingmaður VG leitar til stjórnarandstöðunnar vegna ESB
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































