Örtröð á dekkjaverkstæðum

Snör handtök á dekkjaverkstæði.
Snör handtök á dekkjaverkstæði. mbl.is/Árni Sæberg

Langar biðraðir mynduðust við dekkjaverkstæði á höfuðborgarsvæðinu í morgun. Fæstir bíleigendur munu hafa verið undir það búnir að þurfa að feta sig eftir götum borgarinnar í snjó og hálku og því myndaðist örtröð á dekkjaverkstæðum.

Það myndaðist um það bil 15 bíla biðröð fyrir utan Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns í Hátúni í Reykjavík en vinnan gekk hratt og vel fyrir sig.

Að sögn eigandans kallaði hann strax út mannskap þegar hann sá hvert stefndi í gærkvöldi og í morgun var því unnið í teymum og handtökin voru snör.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert