Þjóðin aldrei betur stödd til að vinna sig úr vanda

Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands.

Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands. mbl.is/Skapti

Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, hvetur presta og djákna Þjóðkirkjunnar til að vera vakandi fyrir andlegri líðan fólks sem lendir í efnahagslegum þrengingum. Jafnframt hvetur hann söfnuði landsins til að bregðast við með andlegum stuðningi og sálgæslu.

Þetta kemur fram í pistli biskups sem birtist í dag á vefnum Trúin og lífið og ber yfirskriftina „Samstaða og umhyggja“. Pistillinn er svohljóðandi: 

„Veðragnýr fjármálakreppunnar skelfir margan, sem óttast að grunnstoðirnar séu að bresta. Angist og kvíði er hlutskipti margra um þessar mundir. Ljóst er að þröngt getur orðið í búi hjá einstaklingum og fjölskyldum á næstu mánuðum. Við slíka erfiðleika reynir á samstöðu og umhyggju allra. Í guðspjöllunum talar Jesús um „angist þjóða, ráðlausra við dunur hafs og brimgný" – og það lýsir ástandinu þessa síðustu daga. Hvað mun standast flóðbylgju kreppunnar? Guð einn veit. Líf okkar er í hendi hans og hann þekkir og skilur áhyggjur okkar og vanda. „Verið ekki áhyggjufullir um líf yðar," segir Jesús, „yðar himneski faðir veit." Og Pétur postuli hvetur okkur til að varpa öllum áhyggjum okkar á Drottin, því hann ber umhyggju fyrir okkur. Áhyggjur okkar ber umhyggja hans. Í þeim faðmi er okkur óhætt.

„Varla hræðist sá veðraský sem vorið í fjarska eygir." segir Davíð skáld frá Fagraskógi. Jesús hvetur til þess að þegar angistin sest að við gnýinn og dunurnar þegar undirstöðurnar bifast, þá skulum við lyfta höfðum okkar í von „því lausn yðar er í nánd." Framundan er vorið handan allra vetrarveðra. Því megum við treysta. Við megum reiða okkur á návist Guðs og atbeina góðra manna. Guð er að verki og þar er engin lausafjárþurrð. nægtir náðar hans standa öllum til boða. Og hvert og eitt getum við rétt öðrum hjálparhönd og hlýjan hug umhyggju og kærleika.

Kreppa er líka tækifæri, oft er minnt á það. Nú fá ríki heims og fjármálastofnanir og einstaklingar tækifæri til að endurskipuleggja sig með visku hagsýni og hófsemi og umhyggju að leiðarljósi.

Tungumál óttans hefur verið yfirgnæfandi undanfarið. Nú skulum við tala tungumál umhyggjunnar og sýna umhyggju um lífið, um jörðina, um hið viðkvæma og brothætta líf, börnin, þá sjúku, og hin öldruðu. Og við skulum beina athygli að auðlegðinni og verðmætunum sem eilíf eru og aldrei falla í gildi. Það er svo ótal margt að gleðjast yfir og þakka í okkar góða samfélagi. Við höfum sem þjóð áður glímt við hamfarir og hörmungar. Aldrei höfum við verið betur stödd til að takast á við afleiðingar og vinna okkur úr vanda.

Ég beini þeim tilmælum til presta og djákna Þjóðkirkjunnar að vera vakandi fyrir þessum vanda og hvernig hann hefur áhrif á andlega líðan fólks sem lendir í efnahagslegum þrengingum. Jafnframt hvet ég söfnuði landsins til að bregðast við með þeim andlega stuðningi og sálgæslu sem er á þeirra færi, að opna kirkjurnar til samverustunda og fyrirbæna, minna á kyrrðarstundir sem víða eru í kirkjum landsins á virkum dögum sem og annað helgihald.

Ég þakka þeim mörgu sem leggja sig fram um að liðsinna fólki í erfiðleikum, þar má minna á Hjálparstarf kirkjunnar, Fjölskylduþjónustu kirkjunnar og Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, þar sem unnið er mikið og óeigingjarnt starf, sem og á vegum hinna fjölmörgu líknarsamtaka í landinu. Guð blessi það allt. Ég hvet sóknir og söfnuði til samstarfs við félagslegar stofnanir og þjónustu af ýmsum toga sem hefur með velferð fólks að gera. Guð vors lands láti ljós sitt og anda leiða og blessa okkur öll.

Karl Sigurbjörnsson“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.

Meintar falsanir til lögreglunnar

19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Átak gegn ölvunarakstri

Úr safni.
15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Peugeot 206 XR Présence árgerð 2007
Til sölu mjög góður og fallegur Peugeot árg. 2007 ekinn 75.000 km. Beinskiptur. ...
Haraldur Guðni Eiðsson er fertugur í dag
Haraldur verður að heiman á afmælisdaginn. Hann afþakkar blóm og gjafir en biður...
Sendill
Nissan Vanette 2300 td '98, ekinn 190. Verð= tilboð eða skipti. 7775919...
GLÆSILEGIR
GLÆSILEGIR Teg. MYSTERY - Hægt að nota ÁN HLÝRA - Glæsileg blúnda, fæst í A, B, ...
 
Bókari og launafulltrúi
Skrifstofustörf
Samband íSlenSkra Sveitarfélaga Star...
15229 bílaleigubílar ríkiskaup

15229 - Bílaleigubílar - Rammasamni...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....