Fjármálasviptingar: Hvað hefur gerst í morgun?
Hlutirnir gerast hratt á heimsmörkuðum um þessar mundir. Forsætis- og fjármálaráðherra Bretlanda hótuðu Íslendingum málaferlum í morgun vegna innistæðna viðskiptavina Icesave. Á sama tíma segja norrænir fjölmiðlar brunasölu á eignum íslenskra banka erlendis hafna. Landsbankinn í Lúxemborg lokar fyrir viðskipti í bankanum.Seðlabanki Ísland gefst upp á að halda í fastgengisstefnu íslensku krónunnar að sinni.
Miðvikudagur 8. október kl. 11.39 - Áhugi erlendu pressunnar mikill
Erlendir fréttamenn streyma til landsins og hafa stjórnvöld komið upp sérstakri blaðamannamiðstöð fyrir þá í Miðbæjarskólanum við Tjörnina í Reykjavík. Að sögn Urðar Gunnarsdóttur, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins sem fékk það verkefni að koma miðstöðinni á fót, eru flestir blaðamannanna frá Norðurlöndunum og Bretlandi. En auk þess eru fréttamenn frá Bandaríkjunum, Rússlandi, Frakklandi og fleiri Evrópulöndum.
Miðvikudagur 8. október kl. 11.22 - Lokað fyrir viðskipti
Landsbankinn í Lúxemborg lokar fyrir viðskipti í bankanum. Ekki er ljóst hvort lokað hefur verið fyrir öll viðskipti í bankanum eða hvort aðeins hafi verið lokað fyrir kaup á hlutabréfum í bankanum.
Miðvikudagur 8. október kl. 10.05 - „Bílskúrssala“ eigna
„Bílskúrssölur“ eru hafnar á eigum íslenskra banka erlendis, segir á norska viðskiptavefnum E24, þar sem fjallað er um sölur á fyrirtækjum í eigu Kaupþings og Glitnis í Bretlandi og á Norðurlöndunum.
Í fréttinni á E24 segir frá kaupum ING í Bretlandi á Edge og Heritable bönkunum þar í landi, sem voru í eigu Kaupþings og Landsbankans, sölu á Kaupþingi í Svíþjóð, sem kunni að enda í höndum sænska seðlabankans, fáist ekki kaupendur.
Miðvikudagur 8. október kl. 09.15 - Fundi forsætisráðherra frestað
Forsætisráðuneytið boðar til blaðamannafundar í Iðnó. Rétt fyrir kl. 11 bárust fréttir af því að fundinum hefði verið frestað til kl. 16. Engar upplýsingar fengust í forsætisráðuneytinu um ástæður frestunar fundarins.
Miðvikudagur 8 október kl. 08.57 - Viðskipti stöðvuð
Viðskipti með hlutabréf Kaupþings í Svíþjóð hafa verið stöðvuð í kauphöllinni í Stokkhólmi en áður en það gerðist höfðu bréf bankans lækkað um 34%. Tillkynnt var í morgun, að sænski seðlabankinn hefði veitt Kaupþingi lán til að tryggja lausafjárstöðu bankans.
Miðvikudagur 8. október kl. 08.40 - Ráðamenn Bretlands hóta aðgerðum gegn Íslandi
Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, segir við breska ríkisútvarpið BBC, að bresk stjórnvöld muni leita réttar síns gagnvart Íslandi, standi íslenska ríkið ekki við skuldbindingar sínar gagnvart breskum sparifjáreigendum sem lögðu fé á reikninga hjá Icesave, netbanka Landsbankans.
Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, segir við BBC að íslensk stjórnvöld ætli ekki að standa við skuldbindingar sínar um að tryggja innistæður á reikningum Icesave. Bresk stjórnvöld ætli hins vegar að tryggja, að reikningseigendurnir fái alla sína peninga til baka. Talsmaður fjármálaráðuneytisins segir, að ráðuneytið ábyrgist að enginn muni tapa peningum á viðskiptum við Icesave. Hafa bresk stjórnvöld fryst allar eignir Landsbankans í Bretlandi þar til staðan skýrist.
Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sagði á blaðamannafundi í gær, þegar BBC spurði hann um innistæður Breta í Icesave, að ef þörf væri á þá myndi íslenska ríkið styðja Tryggingarsjóð innistæðueigenda í að afla nauðsynlegs fjármagns svo sjóðurinn gæti staðið við lágmarksskuldbindingar sínar í kjölfar gjaldþrots eða greiðslustöðvunar íslensks banka.
Miðvikudagur 8. október kl. 11.26 - Hrun fjármálakerfisins á Íslandi hefði víðtæk áhrif í Evrópu
Nýleg inngrip breskra og sænska yfirvalda eru, eftir því sem fram kemur í frétt AP fréttastofunnar, talin undirstrika þau áhrif sem algjört hrun fjármálakerfisins á Íslandi geti haft annarsstaðar í Evrópu vegna mikilla fjárfestinga íslenskra banka og fyrirtækja um alla álfuna. Sænska seðlabankans hefur veitt sænskum armi Kaupþings lánafyrirgreiðslu og breska útibú hollenska bankans ING hefur keypt innlán Kaupþing Edge og Heritable-banka Landsbankans í Bretlandi.
Baugur er sérstaklega tiltekinn sem stór fjárfestingaraðili þar sem hann eigi að fullu eða hluti í fjölda stórra smásöluverslanafyrirtækja og í Bretlandi sé umsvifin slík að fyrirtækið sé hið stærsta þar í landi á sínu sviði.
Þá kemur fram að Kaupþing hafi í Evrópu fjárfest í fjölda smásölufyrirtækja og skuldsett sig fyrir um 5,29 milljarða dala á síðustu fimm árum til að fjármagna uppkaup í Bretlandi.
Þriðjudaginn 7. október - Sænski seðlabankinn veitir Kaupþingi lán
Sænski seðlabankinn tilkynnir að hann hafi veitt Kaupþingi í Svíþjóð lán. Í tilkynningu frá sænska seðlabankanum kemur fram að hafið sé ferli til að selja Kaupthing Bank Sverige. Viðskipti hófust með bréf bankans í kauphöllinni í Stokkhólmi í dag og hafa bréf bankans lækkað um 19,79%.
Sænska blaðið Dagens Industri, segir að lán sænska seðlabankans til Kaupþings hafi verið veitt eftir að viðskiptavinir bankans hófu að taka út innistæður sínar, bæði í Svíþjóð og af netbankanum Kaupthing Edge. Haft er eftir Peter Borsos, upplýsingafulltrúa Kaupþings, að bankinn hafi talið þörf á því að efla lausafé sitt til að bregðast við óróleikanum í kringum Kaupþing.
Kaupþing keypti upphaflega verðbréfafyrirtækið Aragon och JP Nordiska í Svíþjóð árið 2002 og það félag þróaðist í Kaupthing Bank Sverige, sem er skráður í sænsku kauphöllinni. Um 350 manns starfa hjá bankanum í Svíþjóð.
Þá er kemur fram í finnskum fjölmiðlum, að Glitnir ætli að selja dótturfélagið Glitnir Finland og Glitnir Kapitalförvaltning.
Þriðjudagur 7. október - Afþökkuðu fé frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
Íslensk stjórnvöld afþökkuðu fjárhagslega aðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF) við lausn bankakreppunnar hér, að því er Reuters-fréttastofan hafði eftir ónafngreindum embættismanni eins G7-ríkjanna, samtaka sjö stærstu hagkerfa heims, í gær þriðjudag
Sagði hann Japana hafa lagt til að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn aðstoðaði Íslendinga. Íslendingar vildu hins vegar ekki biðja sjóðinn um peninga, enda vildu þeir ekki að það spyrðist út að landið þyrfti á slíkri fjárhagsaðstoð að halda.
Davíð Oddsson seðlabankastjóri vék að samskiptunum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn í viðtali við Kastljósið í gærkvöldi, þar sem hann sagði fimm sérfræðinga bankans nú veita seðlabankanum aðstoð og ráðgjöf.
Minnti hann á að ofangreind fjárhagsaðstoð IMF væri skilyrt og að með því að þiggja hana myndu stjórnvöld tímabundið afsala sér stjórn eigin peningamála. Þetta væri aðstoð til handa gjaldþrota ríkjum og Ísland væri ekki gjaldþrota.






































