Árni mun ræða við ráðamenn og fjármálafyrirtæki

Fjármálaráðherra, Árni M. Mathiesen, fer í dag til Washington á ársfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans þar sem ástand efnahagsmála í heiminum verður til umfjöllunar.

Samkvæmt tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu mun Árni  m.a. eiga tvíhliða fundi með fulltrúum bandarískra og breskra stjórnvalda auk þess sem hann mun hitta fulltrúa fjölmargra fjármálafyrirtækja sem átt hafa viðskipti við Ísland.

Fundirnir hefjast á morgun og standa fram á þriðjudag í næstu viku.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert