Lífeyrissjóðir tapa miklu fé

 Heildareignir lífeyrissjóðanna munu dragast saman um tugi milljarða króna vegna erfiðleika íslensku bankanna. Þrír lífeyrissjóðir: Lífeyrissjóður Bankastræti 7, Gildi – lífeyrissjóður og Lífeyrissjóður verslunarmanna áttu stóra hluti í öllum bönkunum þremur.

Alls áttu íslenskir lífeyrissjóðir 170 milljarða króna í innlendum hlutabréfum um mitt þetta ár og 171 milljarð króna í innlendum skuldabréfa- og verðbréfasjóðum. Ekki liggur enn fyrir hvort þrotabú þeirra banka sem ríkið hefur tekið yfir taki við kröfum vegna þessa.

Tap sjóðanna verulegt áfall

Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra lífeyrissjóða, segir að atburðir síðustu daga muni klárlega hafa áhrif á heildareignir lífeyrissjóðanna og að tryggingafræðileg staða þeirra muni versna.

„Ég get ekki svarað fyrir einstaka sjóði en auðvitað er þetta verulega mikið áfall að sjóðirnir verði fyrir þessum töpum.“ Í lok september voru áðurnefndir þrír sjóðir á meðal átta stærstu eigenda í Kaupþingi með samtals 9,4 prósent hlut sem á síðasta skráða gengi bankans er metinn á tæpa 46 milljarða króna. Kaupþing í Bretlandi var í gær sett í greiðslustöðvun og mikil óvissa ríkir um framtíð bankans.

Exista á um 25 prósent í Kaupþingi. Á meðal stærstu eigenda í Exista eru þrír lífeyrissjóðir með samtals um 9,6 prósent eignarhlut. Markaðsvirði hans á mánudag var um 6,3 milljarðar króna. 24 stundir greindu frá því í gær að eiginfjárhlutfall Exista væri orðið neikvætt og félagið því tæknilega gjaldþrota.

Í 24 stundum í gær var einnig sagt að þrír lífeyrissjóðir ættu samtals 6,33 prósent í Landsbankanum. Það miðaðist við stöðuna í lok ágúst. Á síðasta birta lista yfir eigendur bankans áttu þessir þrír lífeyrissjóðir alls 4,74 prósent hlut í bankanum að andvirði rúmlega 10 milljarða króna. Samkvæmt upplýsingum frá Lífeyrissjóði verslunarmanna hafði sjóðurinn þó minnkað eign sína í bankanum enn frekar og stóð hún í um 1,4 prósenti. Þá áttu tveir lífeyrissjóðir um 3,3 prósent í Glitni sem var metin á um 492 milljónir króna fyrir aðkomu ríkisins að Glitni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hjólavagnar
Glæsilegir hjólavagnar. Sterkir og liprir. Lág verð, heildsala - lagersala. www...
HYMER FEELING 430 - Létt og meðfærilegt hjólhýsi
HYMER Feeling 430 eru með fullkomnustu smá-hjólhýsum á markaði. Hymer eru eins...
Zimmermann píanó
Til sölu vel meðfarið Zimmermann píanó. Verð 125.000. Upplýsingar í síma 84589...
15,2 fm bjálkahús - Verð kr. 725.000
Húsið er úr 44mm bjálkum. Húsið er ósamsett og til afhendingar strax. Áætlaður...
 
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...