Safnið á ný til þjóðarinnar

stækka

Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Morgunblaðið Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is
Íslenska þjóðin hefur á ný eignast hið geysiverðmæta málverkasafn Landsbankans. Safnið fylgdi þegar ríkið seldi Landsbankann árið 2002. Safnið telur nú um 1.700 myndverk.

Að sögn Ásgeirs Friðgeirssonar, talsmanns Björgólfs Guðmundssonar, er safnið á sínum stað í bankanum. Safnið sé nú í raun í umsjá skilanefndar, sem Fjármálaeftirlitið skipaði til að taka bankann yfir. „Málverkasafnið er eign bankans en ekki einkasafn. Það hefur aldrei verið eignfært enda talið mjög erfitt að meta það til fjár,“ segir Ásgeir.

Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur hefur verið listrænn ráðunautur Landsbankans hin seinni ár. Hann segir að eignadeild Landsbankans hafi haldið utan um safnið, annast varðveislu þess og lán á verkum.

Að sögn Aðalsteins eru nú um 1.700 myndverk í safninu. Þegar bankinn var einkavæddur voru myndverkin um 1.300 talsins. Síðan bankinn var einkavæddur hefur markvisst verið bætt við safnið með kaupum á verkum eftir þekkta listamenn.

Aðalsteinn segir að í safninu séu mörg frábær listaverk og sum þeirra teljist með mestu perlum íslenskrar myndlistarsögu. Að því leyti sé safnið ómetanlegt. Sum verkanna frá fyrri tíð séu reyndar ekki ýkja merkileg. Þá hafi ekki verið fylgt markvissri stefnu varðandi listaverkakaup. Dæmi séu um að verk hafi verið tekin upp í skuld eða keypt fyrir greiðasemi.

Bankinn á í safni sínu verk eftir alla helstu frumkvöðla málaralistarinnar hér á landi. Til að mynda eru í safninu um 60 verk eftir Jóhannes S. Kjarval. Um er að ræða nokkur af bestu olíumálverkum listamannsins, en einnig er þarna að finna mörg smærri verk.

Í aðalbanka Landsbankans eru nokkur naglföst verk, sem Aðalsteinn segir að séu alveg einstök í sinni röð. Nefnir hann sem dæmi verk Jóns Stefánssonar í afgreiðslusal bankans, veggmyndir Kjarvals á bankastjóraganginum og stóra mósaíkmynd Nínu Tryggvadóttur í sal, þar sem gjaldeyrir var afgreiddur fyrr á árum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
www.keyrsla.is Sendibílar
Heimsendingar - Búslóðaflutningar - Vörudreifing - fyrirtækjaflutningar. Öflug,G...
Gisting í Eyjafirði
Bjóðum upp á gistingu í íbúð með tveimur tveggja manna herbergjum með uppábúnum ...
4 stólar til sölu - mjög gott verð !
Þessir flottu stólar eru til sölu aðeins 4.000 kr. stk. Eru eins og nýjir (mjög ...
BÍLASTÆÐAMÁLUN, MALBIKSVIÐGERÐIR
Bílastæðamálun malbiksviðgerðir og véls...
 
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...