Innlent
| Morgunblaðið
| 9.10.2008
| 5:50
Skuldamálum fjölgar mikið
Skuldamálum, svonefndum útivistarmálum, hefur fjölgað umtalsvert hjá Héraðsdómi Reykjavíkur í haust miðað við sama tíma í fyrra en hins vegar merkir Sýslumaðurinn í Reykjavík ekki fjölgun í árangurslausum fjárnámum eða svipuðum málaflokkum.
Útivistarmál draga nafn sitt af því að skuldari mætir ekki til dómþings. Á tímabilinu 1. september til 7. október 2008 hafa tæp 2.700 slík mál verið þingfest í héraðsdómi en voru 1.382 á sama tímabili árið 2007. Eðlilegur gangur í málum af þessum toga er að kröfuhafi leiti til sýslumanns um að gert verði fjárnám hjá skuldara en oft fæst ekkert út úr slíkri aðför sem þar með flokkast þá til árangurslauss fjárnáms, sem er undanfari gjaldþrotaskiptabeiðna hjá héraðsdómi.
5.800 árangurslaus fjárnám
Hjá Sýslumanninum í Reykjavík fást þær upplýsingar að gerð hafa verið 5.800 árangurslaus fjárnám hjá einstaklingum það sem af er árinu. Á tímabilinu janúar til október 2007 voru þau hins vegar 6.300. „Við höfum ekki ennþá séð fjölgun í aðfarabeiðnum eða uppboðum á eignum,“ segir Þuríður Árnadóttir, staðgengill sýslumanns.Útlit er þó fyrir að fleiri bílar en vanalega lendi á uppboðum á næstunni. Það sem af er árinu hafa 339 bílar verið boðnir upp á fjórum uppboðum hjá embættinu.
orsi@mbl.is
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 28. júlí 2008, Innlent Erfiðleikar hjá húskaupendum
- Þriðjudagur, 3. mars 2009, Innlent Færri nemendur en fleira starfsfólk
- Miðvikudagur, 26. nóvember 2008, Innlent Dregur úr umferðarslysum í Reykjavík
- Þriðjudagur, 3. nóvember 2009, Innlent Stefnir í metár í ferðaþjónustu
- Þriðjudagur, 16. júní 2009, Innlent Færri ferðamenn en eyða meiru
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
Nissan Patrol árg. 2000 til sölu
NISSAN PATROL 2,8 L. TD ELEGANCE '35 breyttur, árg. 2000 til sölu. Verð 1.350, e...
Lítill ljósabekkur
Til sölu þessi krúttlegi ljósabekkur Orginal philips uva. 8 perur. Upplýsingar í...
Rafskutla til sölu
Til sölu ónotuð rafskutla sem hentaði ekki viðkomandi einstaklingi.
Verð: 295.0...
Galeon 610
Mjög vel með farinn 5.9 m með Yamaha F150 (150hp) og kerru til sölu.
5.9 mil...




































