St. Ola fékk á sig brotsjó
St. Ola fékk á sig brotsjó. mbl.is
Ferjan St. Ola fékk á sig brotsjó skammt fyrir utan höfnina í Þorlákshöfn um klukkan átta í kvöld. Ákveðið var að halda för áfram en þrír gluggar brotnuðu og var farþegum brugðið. St. Ola siglir á milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja á meðan Herjólfur er í slipp á Akureyri.
„Það er unnið að því að farþegum verði veitt áfallahjálp þegar til Vestmannaeyja er komið," sagði Heiðrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri lögfræði og upplýsingasviðs Eimskipa við mbl.is.
„Það slasaðist enginn en fólki var brugðið," sagði Heiðrún.
Þrír gluggar í sal á stjórnborðshlið brotnuðu en áhöfn tókst að setja upp í þá til bráðabrigða. Þetta var síðasta ferð St. Ola í dag en Heiðrún sagði að fyrri ferð skipsins frá Vestmannaeyjum myndi falla niður í fyrramálið og ítrekaði hún að engin hætta væri talin vera á ferðum.
Tíu metra ölduhæð
Samkvæmt upplýsingum mbl.is er ölduhæð mikil, um 10 metrar og ferð ferjunnar sækist hægt, reiknað er með að ferjan komi til Eyja um klukkan eitt í nótt.
Það er 41 farþegi um borð og var öllum sagt að fara fremst í skipið og eru margir þeirra sjóveikir enda öldugangur mikill.
St. Ola er eistnesk ferja sem hefur þrisvar áður verið fengin í siglingar milli lands og Eyja þegar þurft hefur að sinna viðhaldi á Herjólfi.
Bloggað um fréttina
-
Jón Aðalsteinn Jónsson ufff -
Gísli Birgir Ómarsson Ja hérna. -
Pálmi Freyr Óskarsson Hvað er verið að fara með .......
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 26. september 2008, Innlent Herjólfur í slipp
- Þriðjudagur, 15. september 2009, Innlent Vestmannaeyjar án sjósamgangna
- Mánudagur, 21. september 2009, Innlent Baldur var ódýrastur
- Fimmtudagur, 17. september 2009, Innlent Enn falla ferðir Baldurs niður
- Þriðjudagur, 15. september 2009, Innlent Baldur siglir ekki fyrri ferð
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































