Tónlistarhús í óvissu
Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is
Engar viðræður voru hafnar í gær milli skilanefndar Landsbankans og aðstandenda tónlistar- og ráðstefnuhússins við Reykjavíkurhöfn. Stefán Hermannsson, framkvæmdastjóri Austurhafnar-TR, segir að fullkomin óvissa ríki um framhald verksins.
Um einkaframkvæmd er að ræða, samkvæmt samningi milli Austurhafnar-TR og eignarhaldsfélagsins Portus, sem til helminga er í eigu Landsbankans og Nýsis. Austurhöfn er í eigu ríkisins, sem á 54%, og Reykjavíkurborg á 46% hlut.
„Á meðan ekkert hefur verið ákveðið halda framkvæmdir áfram en það á alveg eftir að fara yfir málin og taka ákvarðanir. Við erum að fara yfir stöðuna,“ segir Stefán, sem rætt hefur við Portus og Íslenska aðalverktaka um stöðuna.
Bygging hússins er um það bil hálfnuð og að sögn Stefáns var búið að gera samninga um flesta þá verkþætti sem eftir eru. Aðalverktakar hafi verið búnir að semja við undirverktaka, sem í flestum tilvikum eru erlend fyrirtæki.
Framkvæmdir við bílastæðahús tónlistarhússins eru einnig hafnar. Upphaflega voru áætluð 1.600 bílastæði og þar af tilheyrðu tónlistarhúsinu tæplega 500 stæði. Óvissa er um stokk á þessu svæði og því var ákveðið að skipta bílastæðahúsinu í áfanga. Er nú byrjað á þeim áfanga sem tengist tónlistarhúsinu, alls 700 stæði, og á því verki að vera lokið um leið og sjálft húsið verður tekið í notkun. Bílastæðasjóður Reykjavíkur var skuldbundinn til að kaupa 250 stæði. Þá er fullkomin óvissa um að fyrirhugaðar höfuðstöðvar Landsbankans rísi á þessu svæði, sem og hótel í tengslum við tónlistarhúsið.
Gengið var frá samningum um byggingu hússins á sínum tíma, árið 2003, og síðan samið um rekstrarstyrki að framkvæmdum loknum. Eigandi hússins er Portus en ríki og borg skuldbundu sig síðan til að greiða árlega ákveðið framlag samkvæmt samningi í 35 ár. Er það því mikið hagsmunamál fyrir Portus að ljúka framkvæmdinni til að ná inn rekstrarstyrkjum.
Reykjavíkurborg á sem fyrr segir 46% hlut í Austurhöfn. Óskar Bergsson, formaður borgarráðs, segir borgaryfirvöld ekki hafa rætt um frekari aðkomu þeirra að verkefninu. Borgin hafi lagt fram sína aðgerðaráætlun um rekstur og eignir sínar. Hann muni ekki tjá sig um einstök verkefni. bjb@mbl.is





































