Fjöldi fyrirtækja í hættu
Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is
Þá óskaði Samson eignarhaldsfélag, stærsti eigandi Landsbankans, eftir greiðslustöðvun eftir þjóðnýtingu ríkisins á þeim banka.
Stærsti eigandi Kaupþings, Exista, hefur ekki óskað eftir greiðslustöðvun og mun félagið vera að vinna úr sínum málum. Fram hefur komið að eignir félagsins í norska tryggingafélaginu Storebrand og finnska fjármálafyrirtækinu Sampo hafa verið seldar. Exista á þar fyrir utan Skipti, eignarhaldsfélag Símans, VÍS tryggingafélag og stóran hlut í Bakkavör. Sparisjóðirnir eiga margir hlut í Exista í gegnum eignarhaldsfélagið Kistu. Fari svo að Exista þurfi að láta undan munu sparisjóðirnir verða fyrir höggi.
Stoðir, stærsti eigandi Glitnis, eiga 39% hlut í Baugi Group og þá á félagið Tryggingamiðstöðina að fullu. Þessi félög gætu farið illa úr gjaldþroti Stoða. Þá eiga aðilar tengdir Stoðum Haga, sem er viðkvæmt af sömu sökum.
Aðrir stórir hluthafar í Glitni eru Þáttur og Saxbygg. Félög tengd eigendum Þáttar eru Milestone, Askar Capital og Sjóvá og standa þau óhjákvæmilega veikar nú en áður. Þá er Byggingafélag Gylfa og Gunnars annar eigandi Saxbyggs, stórs hluthafa í Glitni, og mun það óhjákvæmilega verða fyrir áhrifum.
Stærsti eigandi Landsbankans, Samson hefur fengið greiðslustöðvun, eins og áður segir. Eigendur Samson eiga stóra hluti í Eimskipafélaginu og Icelandic. Þá hefur komið í ljós að vegna erfiðleika Samson er mikil óvissa um 25 milljarða króna ábyrgð sem fallið gæti á Eimskipafélagið vegna sölu félagsins á XL Leisure. Telja verður stöðu Straums öllu sterkari, en ljóst má vera að ákveðin óvissa ríkir um framtíð bankans, einkum þegar lánshæfiseinkunn hans hefur verið lækkuð.





































