Lífeyrissparnaður hjá Kaupþingi ekki tapaður

stækka

Sverrir Vilhelmsson

Í ljósi þess að Fjármálaeftirlitið hefur tekið yfir rekstur Kaupþings er tekið fram a vef Kaupþings að inneign sjóðfélaga í lífeyrissparnaði Kaupþings er aðskilin eignum bankans og ekki hægt að ráðstafa upp í skuldbindingar hans. Margir hafa talið að allur lífeyrissparnaður þeirra væri tapaður vegna þessa, en það er ekki svo.

Einhverjar eignir tapast

Sjóðfélagar hafa valið fjárfestingarleiðir sem eru með mismunandi vægi hlutabréfa, skuldabréfa og innlána. Ljóst er að eign í hlutum í Glitni, Landsbankanum og Kaupþingi mun tapast og hafa áhrif til lækkunar á ávöxtun leiðanna. Búast má við að hluti skuldabréfa, sem voru útgefin af sömu fyrirtækjum, muni tapast. Önnur skuldabréf í fjárfestingarleiðunum eru ríkisskuldabréf (sem eru með ríkisábyrgð), skuldabréf annarra fjármálafyrirtækja, sveitarfélaga og annarra fyrirtækja. Ríkið hefur ábyrgst innlán í fjárfestingarleiðum lífeyrisafurða í samræmi við nýsett lög.

Með setningu laga nr. 125/2008, þar sem kveðið er á um ábyrgð Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta á innlánum lífeyrissjóða og annarra sjóða um sameiginlega fjárfestingu, er ljóst að fjárfestingarleiðirnar Lífeyrisauki 5 og Vista 5 eru í raun með ríkisábyrgð. Leiðirnar tvær byggjast eingöngu á verðtryggðum innlánum og eru verðtryggðir vextir í dag 7,55%.

Eignastýring Kaupþings hefur á þessu ári kerfisbundið minnkað áhættu í fjárfestingarleiðum lífeyrisafurða Kaupþings. Nýtt hafa verið vikmörk í fjárfestingarstefnu til að selja áhættumeiri verðbréf og keypt hafa verið í staðinn m.a. verðtryggð ríkisskuldabréf, að því er segir á vef Kaupþings.

„Í ljósi þess að ekki eru leyfð viðskipti með hlutabréf í Kauphöll Íslands er ekki hægt að reikna gengi fjárfestingarleiða lífeyrisafurða Kaupþings. Jafnframt er ekki hægt að framkvæma flutninga á milli fjárfestingarleiða og til annarra vörsluaðila á meðan þetta ástand varir. Þegar opnað verður á ný fyrir viðskipti í Kauphöll Íslands verða flutningsbeiðnir afgreiddar eins fljótt og mögulegt er. Sjóðfélagar eru beðnir afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Þeir sem hafa samband og vilja minnka áhættu á lífeyrissparnaði sínum geta óskað eftir flutningi inneigna milli fjárfestingarleiða innan sama sjóðs og verður sú beiðni afgreidd eins fljótt og mögulegt er eftir að opnað verður á ný fyrir viðskipti í Kauphöll Íslands. Fyrsti flutningur á milli leiða er ókeypis en síðari flutningar á almanaksári kosta 0,5%. Ef sjóðfélagar í Frjálsa lífeyrissjóðnum vilja flytja inneign sína í verðtryggð innlán, sem ríkið hefur ábyrgst, þá er hægt að flytja í Lífeyrisauka 5 með 1% kostnaði af fluttri fjárhæð," að því er segir á vef Kaupþings.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
JEEP GRAND CHEROKEE
Jeep Grand Cherokee Overland 4.7 , 06/2004, ekinn 139 þús. Ssk., le...
www.keyrsla.is Sendibílar
Heimsendingar - Búslóðaflutningar - Vörudreifing - fyrirtækjaflutningar. Öflug,G...
Hobby 560 kmfe kojuhús til sölu árg 2007
Til Sölu Hobby 560 kmfe Exclusive,, útvarp sjónvarp dvd ,sólarsella, boiler ,álf...
GARÐSKÁLI GEYMSLUR GESTAHÚS
Garðskáli - geymslur - gestahús Vönduð hús ú...
 
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....