Mikið fjallað um Icesave erlendis
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
„Fólk er mjög reitt og hissa, að fá hvergi upplýsingar um hvað verður um peningana þess,“ segir Jóna Hálfdánardóttir, sem búsett er í Amsterdam í Hollandi. Um 120 þúsund Icesave-reikningseigendur eru í Hollandi og segir Jóna að fjöldi þeirra ætli að höfða mál gegn Landsbankanum.
Aðalefni sjónvarpsþáttar
Fjallað var um málið í stórum fréttaskýringarþætti, Nova, í fyrrakvöld. Þar talaði hagfræðingur nokkur um „casino“-samfélag á Íslandi sem ekki væri hægt að treysta.Í dagblaðinu Volkskrant (ísl. Alþýðublaðið) var í gær fjallað um bága efnahagsstöðu landsins og sagt að Rússar réttu Íslendingum kannski hjálparhönd. Einnig var fjallað um Icesave og vitnað í Geir H. Haarde og sagt að af orðum hans að dæma væru hollenskir viðskiptavinir ekki nógu mikilvægir. Á forsíðu blaðsins var mynd af aðalútibúi Landsbankans og undir henni fyrirsögnin: „Forsætisráðherra Íslands segir við Hollendinga: Sorrý.“
Jóna segir fjármálaráðherra Hollands hafa reynt að ná sambandi við íslensk stjórnvöld en það gangi illa. Hann segi að Íslendingar verði að taka ábyrgð á gjörðum sínum en mikið hefur verið fjallað um að ekki hafi verið um sameiginlega ríkisábyrgð að ræða á Icesave-reikningunum fyrir 20 þúsund evrum á hvern sparifjáreiganda eins og talið var. Ísland eitt sé ábyrgt fyrir upphæðinni og nú sé ekki víst að þeir geti borgað.
Ekki vinsæl í London
Þóra Hilmarsdóttir nemi er búsett í London í Bretlandi og segir að í sínum vinahópi sé vart talað um annað en ástandið hér á landi. „Það er mikið talað um þetta hérna og fjallað um ástandið í blöðum og sjónvarpi. Fyrir skömmu var Geir H. Haarde á Channel 4 hérna í London,“ segir Þóra og bætir við: „Ég var í tíma í dag [í gær] og kennarinn spurði hvaðan ég væri. Þegar ég svaraði Íslandi sagði hann „Æ, greyið þú núna.““Þóra segir að hún og íslenskir vinir hennar hafi velt því fyrir sér hvort þau ættu að segjast vera frá öðru landi en Íslandi. „Við erum ekki vinsæl í London núna,“ segir hún. Þá segir Þóra marga Íslendinga ósátta við gengi VISA og Mastercard sem síðustu daga hefur verið mun hærra en almenna gengið. Nefnir hún að í fyrradag hafi VISA-gengið á pundinu verið tæpar 300 kr.
Spurð um umfjöllun blaðanna nefnir Þóra eftirminnilega setningu sem birtist í blaðinu The Guardian: „The party is over for the little island who tried to buy the world“. (ísl. Gamanið búið hjá litlu eyjunni sem reyndi að kaupa heiminn).







































