Starfsmenn knúsa hvern annan

Þegar starfsfólk Kaupþings mætti til vinnu í gærmorgun beið þess tölvupóstur þar sem því var tilkynnt að fjármálaeftirlitið væri búið að taka yfir stjórn bankans. Starfsfólki var verulega brugðið en reyndi þó að bera sig vel.

„Við reyndum bara að halda starfseminni eins og hún á að vera,“ segir Svava Halldóra Friðgeirsdóttir, formaður starfsmannafélags bankans. „Fólkið er í óvissu og er að reyna að fylgjast með fréttum af því sem er að gerast,“ segir Svava en yfirmenn í hverri deild bankans hafi fundað með sínu fólki og reynt að stappa í það stálinu og láta fólk vita hvaða aðstoð sé í boði.

„Við höfum boðið upp á sálfræðiþjónustu og aðgang að trúnaðarlækni fyrir þá starfsmenn sem á þurfa að halda.“ Svava segir flesta reyna að bera sig vel. „Við bara knúsum hvert annað á kaffistofunni, það er lítið annað sem við getum gert, þetta er komið úr okkar valdi.“

Reiði gagnvart stjórnvöldum

Mörgum starfsmönnum bankans þykir með ólíkindum hvernig farið hefur fyrir bankanum sem flestir töldu öruggan. Mátti heyra á starfsmönnum sem 24 stundir ræddu við að þeir væru reiðir í garð stjórnvalda vegna þessa og segja „hreint með ólíkindum að misskilningur hafi leitt til hruns bankans“. Fréttir af uppsögnum 550 starfsmanna Landsbanka í gær hafi ennfremur bætt á óvissuna og óttast margir að erfitt verði að útvega öllum vinnu á næstu misserum.

Funduðu með ráðherra

Svipaða sögu er að segja meðal starfsmanna Glitnis. Ringulreið hefur ríkt meðal þeirra og hafa fjölmargir starfsmenn þegið þá áfallahjálp sem þeim hefur verið boðið uppá. Viðskiptaráðherra fundaði með starfsfólki bankans í gær, en nokkra furðu vakti meðal starfsfólks að hann skyldi ekki gera það sama dag og fjármálaeftirlitið tók yfir stjórn bankans.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hjólbarðar til sölu
Er með fjögur Goodyear dekk gróft munstur, stærð 33x12.5R17LT ekin ca 12-15þús k...
Harley Davidsson 2003 árg, 100 ára afmælisútgáfa
Hrikalega flott hjól, ekið 6500 km, mjög vel með farið, fullt af krómi og aukahl...
Úrval af fjarstýrðum þyrlum og m.fl.
Erum með fjarstýrðar þyrlur í miklu úrvali. Netlagerinn slf Dugguvogur 17-19, 2....
Bátar og útgerðarvörur á Haninn.is
Strandveiðibátar, skemmtibátar, nýr og notaður búnaður og útgerðarvörur. Fylgstu...
 
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...