Verðmæt viðbót í safnið
Hvítasunnudagur eftir Kjarval. mbl.is
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is
Mörgverðmæt verk hafa bæst í málverkasafn Landsbankans þann tíma sem Björgólfur Guðmundsson var stjórnarformaður bankans. Hann hlúði vel að safninu og beitti sér fyrir kaupum á verkum eftir nýja og gamla meistara. Safnið er nú komið í eigu íslensku þjóðarinnar á nýjan leik, eftir að ríkið yfirtók bankann.
Frægasta verkið, sem bæst hefur í safnið, er án efa Hvítasunnudagur eftir hinn mikla meistara málaralistarinnar, Jóhannes S. Kjarval. Það þóttu miklar fréttir í byrjun árs 2007 þegar verkið kom í leitirnar í Danmörku og að það yrði selt á uppboði. Verkið er í kúbískum anda og málað á árunum 1917–1919 í Kaupmannahöfn. Vitað var um tilvist myndarinnar, en ekki afdrif hennar fyrr en verkið fannst í Danmörku. Verkið hafði alla tíð verið í einkaeigu.
Kristín G. Guðnadóttir, listfræðingur og ásamt öðrum höfundur bókar um Kjarval sem kom út 2005, fagnaði því þegar verkið kom í leitirnar. Á sínum tíma hefði hún gert talsvert til þess að finna það en án árangurs. Mest hefði verið leitað á Íslandi, en vitað hefði verið um tilvist þess þar sem til voru skissur að því. „Verkið er frá þessu kúbíska tímabili og gefur okkur ýtarlegri og fyllri mynd af því tímabili á hans ferli,“ sagði Kristín.
Hún sagði að Kjarval hefði verið að prófa sig áfram með þennan stíl, sem eiginlega mætti kalla danskan kúbisma, strax eftir að hann kláraði akademíuna. Hann hefði verið leitandi á þessum tíma en verkið hefði verið mjög framsækið þegar það var málað. Verkið gæfi fyllri mynd af þessu stutta kúbíska skeiði hans.
Málverkið var úr safni Nienstedts heildsala, en Kjarval bjó hjá fjölskyldunni þegar hann var við nám í Konunglegu dönsku listakademíunni. Samkvæmt áletrun gaf Kjarval Nienstedts-hjónunum málverkið í silfurbrúðkaupsgjöf í maí árið 1919.
Listasafn Reykjavíkur tók þátt í uppboðinu framan af en safnið hafði ekki fjármuni til að berjast við þá sem hæst buðu. „Ef kaupandinn er íslenskur vonumst við til að geta unnið með honum og sýnt verkið í framtíðinni,“ sagði Hafþór Yngvason, forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur að uppboðinu loknu. Og Hafþóri varð að ósk sinni því hulunni var svipt af kaupandanum í nóvember 2007. Kaupandinn reyndist vera Landsbankinn, og var málverkið sýnt í fyrsta sinn á sýningu sem opnuð var á Kjarvalsstöðum 2. desember 2007.





































