Tár felld á flokksráðsfundi
Flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokksins fyrr í dag var dramatískur og kom þar fram mikill stuðningur við Geir H. Haarde forsætisráðherra, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Fundinum var lokað fyrir fjölmiðlum eftir að forsætisráðherra hafði haldið ræðu sína.
Fundarmenn voru sem höggdofa eftir að Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri flokksins og fulltrúi í stjórn Landsbankans, sem vikið var frá í vikunni, hafði haldið ræðu þar sem hann frábað sér ummæli Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra um „óreiðumenn" í bankakerfinu. Kjartan nefndi Davíð ekki á nafn en fáum duldist hvert ummælunum var beint, að sögn nokkurra fundarmanna.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins fór Kjartan rólega og yfirvegað yfir ýmis mál. Hann upplýsti meðal annars að hann hefði tapað stærstum hluta eigna sinna í bankahruninu. Hins vegar hefði hann, um það leyti sem hlutabréfin byrjuðu að lækka, eignast lítinn dreng. Nú hygðist hann á ný beita sér fyrir uppbyggingu íslensks samfélags, ekki síst í þágu sonar síns.
Kjartan sagði, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, að hann treysti engum manni betur fyrir framtíð sonar síns en Geir H. Haarde. Nú væru erfiðleikatímar og Ísland hefði einmitt leiðtogann sem það þyrfti, rólegan og yfirvegaðan mann sem ekki talaði í fyrirsögnum. Hins vegar þyrfti landið ekki leiðtoga, sem uppnefndi menn, léti mál snúast um sjálfan sig og kallaði fólk óreiðumenn.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins setti fundarmenn hljóða. Þegar Geir og Kjartan féllust í faðma í lok ræðu þess síðarnefnda, felldu margir fundarmenn tár.
Davíð Oddsson seðlabankastjóri, sagði í Kastljósi Sjónvarpsins að kvöldi 7. október: „Við erum að ákveða að við ætlum ekki að borga erlendar skuldir óreiðumanna." Ríkið myndi ekki borga skuldir bankanna „sem hafa farið dálítið gáleysislega."
Bloggað um fréttina
-
Jenný Anna Baldursdóttir Ég er ekki að tala við þig - heldur er ... -
Stefán Friðrik Stefánsson Samstaða á örlagastundu -
Dofri Hermannsson Gamlir foringjar -
Birgitta Jónsdóttir Afturhvarf -
Sigurbjörn Svavarsson Hvítþvottur? -
Jón Valur Jensson Tímamótaræða Kjartans Gunnarssonar -
Hólmdís Hjartardóttir Tími uppgjöranna hafinn. -
Kristján Sigurður Kristjánsson XXX -
Ómar Ragnarsson Nauðsynleg kaflaskil í sögu flokksins.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 11. október 2008, Innlent Ekki gagnrýni á Davíð
- Föstudagur, 23. janúar 2009, Innlent Sjálfstæðismenn í sjokki
- Föstudagur, 23. janúar 2009, Innlent Miðstjórnarfundur að hefjast
- Föstudagur, 23. janúar 2009, Innlent Veikindi Geirs mikið áfall
- Þriðjudagur, 27. janúar 2009, Innlent Boðuð á fund forseta
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































