Brýnt að leita eftir aðstoð IMF

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fundar um helgina stækka

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fundar um helgina Reuters

Morgunblaðið Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is
Eins og málum er komið er brýnt að leita eftir láni og aðstoð hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF), að mati Ólafs Ísleifssonar, hagfræðings og kennara við Háskólann í Reykjavík. Hann sat í framkvæmdastjórn sjóðsins á árunum 2002 til 2003.

Óski Ísland eftir aðstoð IMF gerir Ólafur ráð fyrir að sérfræðingar frá sjóðnum muni aðstoða við gerð efnahagsáætlunar sem hafi að markmiði að leggja traustan grundvöll að stöðugleika og endurreisn íslensks efnahagslífs. Áætlunin muni fela í sér aðgerðir sem studdar verði fé frá sjóðnum. Hugsanlega geti aðkoma sjóðsins dregið fleiri lánveitendur að borðinu sem telji sér kleift að lána hingað fé í krafti þess að IMF geri það.

Sendinefndir IMF hafa framkvæmt árlega skoðun á efnahagslífinu hér í samræmi við eftirlitshluverk sjóðsins. Óski Íslendingar eftir láni IMF mun sjóðurinn koma hingað í öðru hlutverki, það er sem lánveitandi og ráðgjafi. Ólafur segir það sérstaklega athyglisvert að í nýjustu skýrslu sendinefndar IMF frá því í júlí síðastliðnum komi fram að langtímahorfur Íslendinga í efnahagsmálum séu „öfundsverðar“.

„Það er ljóst að sjóðurinn telur hér mjög góðan grundvöll til þess að byggja á,“ sagði Ólafur. „Ég geri ráð fyrir að efnahagsáætlun sem yrði samin í samvinnu við íslensk stjórnvöld tæki mið af þessu áliti sjóðsins sem hann hefur lýst skýrt og skorinort í mjög vandaðri skýrslu.“ Skýrslan var nýlega rædd í framkvæmdastjórn IMF.

Ólafur telur að í fyrsta lagi muni IMF leggja hér drög að nýrri stefnu í gjaldeyris- og peningamálum. Hún muni leysa af hólmi þá stefnu sem fylgt hefur verið frá því 2001 með fljótandi krónu og verðbólgumarkmiði. Sú tilraun hefur mistekist að mati Ólafs líkt og hrun krónunnar ber vitni um.

„Ný skipan í gjaldeyris- og peningamálum þarf að vera studd raunhæfri stefnu í fjármálum ríkisins,“ sagði Ólafur. „Ég geri ekki ráð fyrir að af hálfu sjóðsins verði af okkur krafist annars en þess sem nauðsynlegt og skynsamlegt er að gera við þessar aðstæður. Auk þess geri ég ráð fyrir því að þessi áætlun, studd lánsfé sjóðsins, geti laðað aðra að sem þátttakendur í þessu verkefni. Niðurstaðan gæti orðið sú að Íslendingar muni leggja grundvöll að leið út úr þessum vanda í samstarfi við alþjóðlegar stofnanir og fleiri erlenda aðila. Mér sýnist þetta vera í vændum. Slík efnahagsáætlun fyrir Ísland gæti orðið fyrirmynd fyrir önnur lönd í okkar heimshluta sem kynnu að rata í sambærilega stöðu.“

Ólafur telur að raunhæf áætlun um að rata út úr efnahagsvandanum, studd lánsfé IMF og fleiri, geti orðið fyrsta skrefið til þess að endurheimta traust á íslensku efnahagslífi.

„Ég tel víst að frumskilyrði af hálfu sjóðsins og annarra verði að af hálfu ríkissjóðs verði að fullu staðið við skuldbindingar sem hann hefur stofnað til í útlöndum,“ sagði Ólafur.

Ólafur Ísleifsson

Ólafur Ísleifsson Þorkell Þorkelsson

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Ægisvagn til sölu
Ægistjaldvagn til sölu, 2007 árgerð með fortjaldi og eggjabakkadýnum. Vel með fa...
CANON EOS NÁMSKEIÐ - spennandi námskeið.
Kennum á CANON EOS vélar. Námskeið í hverjum mánuði. Í boði eru mislöng námskeið...
Til sölu Hankook dekk
225/75 R16 ca hálfslitin. Verð 30 þús. Uppl. í síma 898 4875...
Íbúð óskast sem næst Lyngby - Kaupmannahöfn
Erum ungt bar með lítið barn og bráðvantar íbúð til leigu. Erum að fara í DTU sk...
 
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...