Uppsagnir gætu leyst mannekluvanda
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is
Háskólanemar sækja í starfið
Líklegustu skýringarnar á því eru að þar býr mikið af ungum fjölskyldum sem eru að koma yfir sig húsnæði og þurfa að vinna mikið og krefjast því meiri vistunarþjónustu en ella. Þar til nýlega, er stúdentagarðar voru byggðir í hverfinu, var lítið um háskólanema í holtinu en þeir skipa stóran hluta starfsfólks frístundaheimilanna. Ásókn háskólanema í starfið, þá einkum nemenda við Háskóla Íslands, sl. ár þykir líka skýra hví betur hefur gengið að manna stöður í Vesturbænum en oft áður. Soffía Pálsdóttir, skrifstofustjóri tómstundamála hjá ÍTR, segist m.a.s. eiga von á því að á næstu tveimur vikum verði búið að útrýma öllum biðlistum þar.Sextán sóttu um eina stöðu
Til að fjölga starfsfólki hafa verið farnar hefðbundnar leiðir, líkt og að auglýsa í blöðum og hengja upp auglýsingar víðs vegar um borgina, en einnig hefur verið brugðið á það ráð að taka upp samráðningar. Í því felst að hefðbundin störf innan grunnskólanna, líkt og störf skólaliða og stuðningsfólks, eru samtvinnuð starfi frístundaheimilanna og hafa 16 manns verið ráðnir til skólanna á slíkum samningum.Spurð hvort fjöldi uppsagna síðustu daga muni breyta stöðunni segir Soffía vel mögulegt að staðan verði gjörbreytt í komandi viku. Hún segir forstöðumenn frístundaheimilanna hafa sagt sér að starfsumsóknum hafi fjölgað síðustu dagana. Nýlega hafi verið auglýst eftir aðstoðarumsjónarmanni á einu heimilanna og sóttu 16 manns um starfið, þar af 12 með háskólamenntun.
Vangaveltur eru nú uppi meðal starfsmanna ÍTR hvort þeir foreldrar sem misst hafi vinnuna kjósi að vera heima um hríð með barnið og taki því nafn þess af biðlistanum. Soffía segir engar umsóknir um vistun hafa verið dregnar til baka en gerst hafi að fólk hafi hringt í ÍTR til að kanna málin. Hún segir að auðvitað sé best fyrir börnin að fá að vera sem mest með foreldrum sínum en hins vegar þurfi þau, í því óvissuástandi sem nú ríkir, ákveðinn öryggisramma. Í starfi frístundaheimilanna sé nú lögð mikil áhersla á að skapast festu, kyrrð og ró í kringum börnin.





































