Grimmúðlegt og úthugsað auglýsingabragð
Eiríkur Bergmann Einarsson, prófessor á Bifröst, skrifar grein í breska blaðið Guardian í dag, þar sem hann segir m.a. að Bretar hafi fallið fyrir grimmúðlegu og úthugsuðu auglýsingabragði Gordons Browns, forsætisráðherra Bretlands, sem hafi haft það eina markmið með árásum sínum á íslenskan almenning að lengja aumt pólitískt líft sitt um einn dag. Fyrir það gjaldi Íslendingar dýru verði.
Eiríkur segist hafa fengið upphringingu frá vini sínum í Ljubljana í Slóveníu, sem spurði hvort hann og fjölskylda hans hefðu mat og húsaskjól úr því þau hefðu misst atvinnuna. „Fyrst skildi ég ekki um hvað hann var að tala: lífið gengur hér að mestu sinn vanagang - en loks rann það upp fyrir mér að hann hafði verið að lesa fréttir breskra fjölmiðla," segir Eiríkur.
Hann fer síðan yfir málið og segir að útrásarkaupsýslumennirnir, sem komu frá Íslandi og hófu að dreifa lánsfé um Bretland og Evrópu, tengist lítið venjulegu vinnandi fólki á Íslandi.
„En af einhverjum undarlegum ástæðum telja breskir fjölmiðlar að þetta sé allt okkur að kenna... Auðvitað erum við reið. Við erum reið þessum ófyrirleitnu kaupsýslujöfrum fyrir að spila með mannorð okkar, það dýrmætasta sem smáþjóð á. En venjulegir Íslendingar bera ekki frekar ábyrgð á áhættusæknum kaupsýslumönnum, sem bera íslenskt vegabréf, en íbúar í Norður-Lundúnum bera ábyrgð á sjálfseyðingarhvöt hinnar hæfileikaríku Amy Winehouse. Og þótt flest okkar njóti enn breskra hluta erum æf af reiði út í bresku ríkisstjórnina. Þegar Brown beitti hryðjuverkalögum til að fella stærsta einkafyrirtæki Íslands, Kaupþing, þá tókst honum næstum að láta okkur fyrirgefa okkar eigin ríkisstjórn, sem brást ekki við þegar vandamálin fóru að sjást út við sjóndeildarhring."
Bloggað um fréttina
-
Torfi Kristján Stefánsson Er hann nú orðinn prófessor? -
Viggó Jörgensson Arðrændu Ísland eins og nýlendu í Afríku. -
Guðmundur Jónas Kristjánsson Tek ofan fyrir Eiriki Bergmann -
Emil Örn Kristjánsson Rétt skal vera rétt, Eiríkur -
Björk Guðmundsdóttir Svoo satt gott hjá þér Eiríkur -
Heimir L Fjeldsted Þökk Eiríkur Bergmann -
Björn Heiðdal Áhugamaður um landráð. -
Guðrún Björk Hallbjörnsdóttir Loksins kom rödd frá Íslendingum -
Eggert J. Eiríksson Usss .. Verður að bregðast við.. -
Hörður Hilmarsson Pólítískt leikrit Gordon Brown
Innlent »
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
Föstudagur, 10.2.2012
- Vandi stjórnarinnar gerður að vanda fjórflokksins
- Ökumenn í vanda vegna hálku
- Hestar sluppu eftir bílveltu
- Nokkrir skjálftar í kvöld
- Snjóar í höfuðborginni
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 7. júní 2009, Innlent Óskiljanleg ákvörðun stjórnvalda
- Laugardagur, 7. mars 2009, Innlent Norrænu ríkin skilin
- Þriðjudagur, 11. nóvember 2008, Innlent Segir Breta hafa yfirtekið ábyrgðir
- Föstudagur, 8. maí 2009, Innlent Krefjast harðra mótmæla frá íslenskum stjórnvöldum
- Miðvikudagur, 21. janúar 2009, Innlent Íslendingum heitt í hamsi
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá




































