Segir bók ekki hafa verið afturkallaða úr prentsmiðju

Bókaútgáfan Forlagið hefur sent frá sér eftirfarandi athugasemd vegna fréttar sem birtist á mbl.is í dag.

„Forlagið vill koma því á framfæri að það er rangt sem fram kemur í frétt mbl.is í dag að bók Guðjóns Friðrikssonar, Saga af forseta, hafi verið afturkölluð úr prentsmiðju. Hið rétta er að höfundur breytti formála og eftirmála bókarinnar til samræmis við nýjustu atburði í efnahagsmálum þjóðarinnar áður en prentun bókarinnar hófst. Allt annað efni bókarinnar er óbreytt."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert