Vitni inn um bakdyrnar

Húsið við Keilufell þar sem árásin var gerð. stækka

Húsið við Keilufell þar sem árásin var gerð.

Við aðalmeðferð í Keilufellsmálinu svokallaða, sem hófst í morgun, varð að leiða þá sem urðu fyrir árásinni inn um bakdyr í dómsalinn því þeir kváðust óttast árásarmennina svo að þeir vildu ekki hitta þá auglitis til auglitis.  Aðeins tveir af sjö sem urðu fyrir árásinni mættu fyrir dóm.

Árásin sem var framin í Keilufelli laugardaginn 22. mars sl. var í senn einstaklega hrottafengin og ósvífin. Um átta árásarmenn ruddust þar inn á íbúa og gesti og gengu í skrokk á þeim með ýmsum bareflum.

Flestir sem að málinu koma, árásarmenn og fórnarlömb, eru pólskir. Sex voru handteknir skömmu síðar en rannsókn málsins leiddi til þess að fjórir voru ákærðir, allt pólskir karlmenn. Einn þeirra hefur setið óslitið í gæsluvarðhaldi frá lokum mars sl. en hinir eru í farbanni. Mennirnir fjórir eru ákærðir fyrir húsbrot og sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa í félagi við aðra ruðst inn í húsið og veist að sjö mönnum sem þar voru í stofu og slegið þá ítrekað í höfuð og víðs vegar um líkama með hættulegum vopnum og bareflum, þ. á m. járnstöng, hamri, sleggju, gaddakylfu, golfkylfu, hafnarboltakylfu, hnífi og öxi. Þeir neita allir sök.

Aðalmeðferð málsins hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Sá sem situr í gæsluvarðhaldi sagðist hafa fylgt öðrum mönnum í húsið en kvaðst hvorki geta lýst þeim né vissi hann nöfn þeirra. Hann játaði einungis að hafa slegið mann tvisvar með hafnarboltakylfu og það hefði hann gert vegna þess að maðurinn hljóp í áttina til hans og hann taldi að maðurinn hygðist ráðast á sig. Tveir ákærðu báru við minnisleysi um atburði sökum áfengis- eða fíkniefnaneyslu og einn neitaði að tjá sig.

Einn mannanna hlaut lífshættulega áverka og voru þær lýsingar sem fram komu á aðförinni á honum hvað hrottalegastar. Sá hlaut langa og djúpa skurði á andlit, augnbotn brotnaði og andslitsbein, hann brotnaði á vinstri handlegg, hlaut rifbrot og fleira.

Aðalmeðferð málsins var frestað til 27. október næstkomandi.

Nánar verður fjallað um málið í Morgunblaðinu í fyrramálið.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Chesterfield sófasett til sölu!
Vel með farið 10 ára gamalt Chesterfield sófasett 3+1+1 til sölu. Uppl í síma 86...
GLÆSILEGIR
GLÆSILEGIR Teg. MYSTERY - Hægt að nota ÁN HLÝRA - Glæsileg blúnda, fæst í A, B, ...
VW Polo árg. 2000, ekinn um 170.000 km
Nýskoðaður, ath.semd við púst og bremsuskálar að framan. Verð 200. þús. Upplýs. ...
HONDA ACCORD EXECUTIVE 2,4 i-VTEC 2006 - SKIPTI ÓDÝRARI
Honda Accord Tourer Executive 2,4 i-VTEC 2006. Sjálfskiptur, ekinn aðeins 78 þ. ...
 
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....