N1 lækkar eldsneytisverð

N1 lækkar í dag verð á eldsneyti, bensín lækkar um kr. 7,80 á lítra og dísilolía um kr. 8,00 á lítra. Algengt verð á bensínlítra er nú 158,90 krónur og á dísilolíu 178,60 krónur. Með þessari lækkun hefur bensín lækkað samtals um 18,80 krónur á lítra og dísill um 21 krónu á lítra á tæpum tveimur vikum, að því er segir í tilkynningu frá N1.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert