Fylgjast náið með niðursveiflunni
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, segir alla sem starfa í áliðnaði fylgjast náið með niðursveiflu á álmörkuðum. Heimsmarkaðsverð á áli hefur lækkað um 37 prósent á þremur mánuðum sem er hraðasta álverðslækkun í sögunni samkvæmt upplýsingum frá London Metal Exchange.
Tómas Már segir öll álfyrirtæki finna fyrir niðursveiflunni. „Það eru ýmis hagræðingarúræði sem fyrirtæki geta gripið til. Það er mikilvægast að leggja mikið upp úr því að hafa framleiðsluna eins hagkvæma og kostur er við svona aðstæður. Við stöndum vel hjá Alcoa Fjarðaáli og erum með nútímalegan og góðan tækjabúnað, sem skiptir miklu máli í árferði eins og er nú.“
Heimsmarkaðsverð á áltonnið er nú um 2.100 dollarar en það var 3.300 dollarar þegar það fór hæst í júlí á þessu. Verðið hefur ekki verið lægra síðan á haustmánuðum árið 2005. Samhliða miklum verðhækkunum á olíu hækkaði verð á áli upp í 3.300 dollara en hefur lækkað hratt líkt og olían að undanförnu. Erlendir fjölmiðlar hafa á síðustu vikum sagt fréttir af hagræðingaraðgerðum álfyrirtækja vegna verðþróunarinnar. Álverum hefur verið lokað og hætt við ný verkefni.
Eins og greint var frá á mbl.is er ekki talið að þróun á heimsmörkuðum muni hafa áhrif á uppbyggingu álvera á Bakka við Húsavík, þar sem Alcoa hyggst byggja upp starfsemi, eða í Helguvík, þar sem Norðurál ætlar að byggja upp starfsemi.
Tómas Már segist ekki geta nefnt það hversu lágt verðið megi fara svo það hafi neikvæð áhrif á rekstur. Hann sagði það vera misjafnt eftirálverum hvernig sveiflur á verði hefðu áhrif á rekstur auk þess sem birgðastaða á efni sem notað væri við framleiðslu skipti miklu máli. Erfitt sé því að spá fyrir um hversu lágt verðið megi fara. „Við einbeitum okkur fyrst og fremst að því að reka Fjarðaál með ráðdeild og á skynsaman hátt og það gengur vel,“ sagði Tómas Már.
Bloggað um fréttina
-
Ómar Ragnarsson Mótsagnir álframleiðslunnar.. -
Ólafur Örn Pálmarsson Nýja Landsvirkjun -
Rúnar Sveinbjörnsson Upplýsingar vegna fréttar!! -
Haraldur Bjarnason Ál niður - Fiskur upp -
Þorsteinn Valur Baldvinsson Hjelm Hrinur álið líka, þá er bara að sækja -
Þór Ólafsson Álver -
Magnús Helgi Björgvinsson Ætli svona fréttir séu kannski undirbúningur að samningum um raforkuverð -
Gunnar Th. Gunnarsson Blekkingarleikur Andra Snæs -
Bergur Thorberg Steingrímur vill ál í stál -
Ævar Rafn Kjartansson Íslenskir álhausar komir aftur af stað -
Sigurður Þórðarson Það á að selja orkuna hæstbjóðanda -
Njörður Helgason Gleðidans.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 30. desember 2008, Innlent Arðsemismat Kárahnjúkavirkjunar endurskoðað
- Fimmtudagur, 4. desember 2008, Innlent Álið fallið úr 3.300 dollurum í 1.642
- Miðvikudagur, 8. apríl 2009, Innlent Fréttaskýring: Áliðnaðurinn á í vök að verjast
- Fimmtudagur, 23. október 2008, Innlent Álið fellur í verði á mörkuðum
- Laugardagur, 5. apríl 2008, Innlent Raforkan ræður stærð
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli





































