Ingibjörg ræddi við Norðmenn og Frakka um aðstoð

mbl.is

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra ræddi ítarlega við Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs og Jonas Gahr Störe utanríkisráðherra Noregs í síma um helgina. Fyrir liggur vilji Norðmanna til að liðsinna Íslandi vegna stöðunnar í efnahagsmálum, en forsenda liðsinnis er samkomulag við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn og á hið sama við um aðrar vinaþjóðir Íslendinga.

Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að Jonas Gahr Störe sé væntanlegur hingað til lands í opinbera heimsókn í byrjun nóvember.

Þá ræddi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir við Bernard Kouchner, utanríkisráðherra Frakka í síma á laugardag. Fullvissaði Kouchner Ingibjörgu Sólrúnu um vináttu Frakka og samstöðu í þeirri erfiðu stöðu sem Ísland er í núna. Ráðherrarnir tveir ákváðu að hittast eins fljótt og því yrði við komið og dagskrá þeirra leyfði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert