Staðan miklu verri
Gunnar Þorláksson, annar eigenda Byggingarfélags Gunnars og Gylfa (BYGG), segist telja atvinnuhorfur næsta árið mun verri en könnun Samtaka atvinnulífsins (SA) gerir ráð. „Þetta er afar varfærið svo ekki sé meira sagt,“ segir Gunnar en samkvæmt könnuninni munu um 7.000 manns missa vinnuna á árinu miðað við tölur um síðustu áramót.
BYGG hefur verið umsvifamikið í uppbyggingu húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum árum. Félagið hefur byggt meira en 200 íbúðir á ári um nokkurra ára skeið. „Staðan er miklu verri á atvinnumarkaðnum en af er látið. Það er mikið atinnuleysi framundan og það eins gott að öll þjóðin, stjórnmálamenn og aðrir, búi sig undir erfiða tíma. Að öðrum kosti dynja áföllin á okkur nánast fyrirvaralaust eins og dæmin sanna með bankanna,“ segir Gunnar og vitnar til yfirtöku Fjármálaeftirlitsins á Glitni, Landsbankanum og Kaupþingi. „Núna er komin upp staða sem er grafalvarleg á öllum vígstöðum og það sem skiptir máli er að fólki sé gerð grein fyrir því að hér sé framundan mikið atvinnuleysi. En svona ástandi fylgja auðvitað líka tækifæri sem eiga eftir að koma í ljós þegar fólk þarf að fara finna lausnir á stórum vandamálum. Þannig er það alltaf og þannig verður það núna. En aðalatriðið er að fólk sé upplýst um að efnahagsástandið hér er grafalvarlegt, alvarlegra en stjórnmálamenn hafa sagt hingað til, og það er engum til góðs að halda upplýsingum um stöðuna frá fólki,“ segir Gunnar.
Eins og greint hefur verið frá á mbl.is telja aðildarfyrirtæki SA að erfiður tími geti verið framundan í atvinnumálum. Tæplega helmingur fyrirtækja sem tók þátt í könnun á vegum SA á dögunum hefur fækkað fólki á árinu eða ætlar að gera það.
Fjórðungur fyrirtækja, sem hyggst segja upp fólki, ætlar að segja upp ófaglærðu starfsfólki, um fimmtán prósent fyrirtækja ætla að segja upp iðnaðarmönnum og sjö prósent háskólamenntuðu fólki.
Bloggað um fréttina
-
Anna Karlsdóttir Eins dauði annars brauð! -
Sigurður Eggertsson Að gefnu tilefni; Fáfnir og félagar -
Þorsteinn Gunnarsson Það er sko under statement to say the least.... -
Hólmdís Hjartardóttir Atvinnuleysi -
Ómar Ragnarsson Ofþenslan gerir þetta verra. -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Ég keypti íbúð af þeim árið "83 -
Gísli Aðalsteinsson Jón Ásgeir stofnar nýjan stjórnmálaflokk? -
Garðar Þór Bragason byggjum bara annað í staðin
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 29. október 2008, Innlent Starfsmannafundur hjá BYGG
- Mánudagur, 27. október 2008, Innlent Stefnir í hópuppsagnir
- Miðvikudagur, 29. október 2008, Innlent Starfsmönnum BYGG sagt upp
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































