Til varnar Íslandi
Þorkell Þorkelsson, ljósmyndari, hefur í dag tekið myndir af íslenskum „hryðjuverkamönnum." mbl.is/Golli
Yfir 9700 manns hafa skrifað undir yfirlýsingu á vefnum undir yfirskriftinni: Íslendingar eru ekki hryðjuverkamenn. Hópurinn, sem kallar átakið Indefence of Iceland, hvetur nú landsmenn til að skrifa undir yfirlýsinguna á vefnum.
Í fréttatilkynningu frá hópnum segir að það sé brýnt að Íslendingar og íslensk stjórnvöld krefjist afturköllunar á þeirri aðgerð breskra stjórnvalda að setja íslenska aðila á lista yfir harðstjórnir. Til þess að ná þessu markmiði þurfa Íslendingar að kynna málstað sinn fyrir bresku þjóðinni, sem gerir sér ef til vill ekki grein fyrir því hversu óeðlilegt var að beita hryðjuverkalögum gegn Íslendingum og hversu alvarlegar afleiðingarnar hafa verið.
Þá segir að með yfirlýsingunni sé þess farið á leit við bresku þjóðina að hún standi með okkur í þeirri viðleitni að binda enda á diplómatískar erjur milli ríkisstjórnar landanna, til að hægt verði að koma í veg fyrir frekara efnahagslegt tjón í löndunum báðum og þannig að hægt verði að hefja uppbyggingu og bæta það tjón sem orðið hefur.
Yfirlýsinguna má lesa á vefsíðunni www.indefence.is og þar getur fólk bætt nafni sínu við á undirskriftarlista sé það sammála inntaki yfirlýsingarinnar.Enn fremur er fólk hvatt til að senda skilaboð til bresku ríkisstjórnarinnar í formi ljósmynda, sem vistaðar verða á sömu vefsíðu. Fyrirhugað er að afhenda breskum stjórnvöldum yfirlýsinguna og undirskriftalistann í viðurvist fjölmiðla til að vekja athygli á réttmætum málstað Íslendinga.
Á síðunni má þegar sjá fjölda ljósmynda af venjulegum Íslendingum með skilti sem segja „Ég er ekki hryðjuverkamaður“, „Þetta er ekki mér að kenna“ og fleira í þeim dúr.
Vonast er til að vefsíðan muni vekja athygli í Bretlandi og kynni þannig málstað Íslendinga.
Í dag hefur Þorkell Þorkelsson, ljósmyndari, boðið Íslendingum að koma í húsnæði Sönglistar í Borgartúni 1 og mynda sig með „vopnin“ sín sem geta verið verkfæri, fartölvur eða annað sem fólk notar við vinnu. Segist Þorkell gera þetta til að hæða og benda á fáránleikann í því að beita hryðjuverkalögum gegn Íslendingum.
Bloggað um fréttina
-
Jakob Falur Kristinsson Hryðjuverkamenn -
Stefán Friðrik Stefánsson Allir að skrá sig á indefence.is - flott framtak -
Theódór Norðkvist Hvers vegna ég skrifa ekki undir þessa yfirlýsingu -
Þórir Kjartansson Beggja megin borðsins.
Innlent »
- Kjarval lækkar vöruverð
- Fresta innheimtu hesthúsaskatts
- Jón Ásgeir: Engir peningar teknir úr Sólarsjóði
- Með ekkert nema fötin utan á sér
- Hvorki fordómar né hatursáróður
- Tekjur lífeyrisþega hafa lækkað
-
Skart stöðvað á leið úr landi
- Jónas Þór: Lögmenn og réttarríkið
- Amnesty með samstöðufund
- Fagna inntökuprófum
- Lukkulegir lottóvinningshafar
- „Líflínan liggur í gegnum flugvöllinn“
- 8 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás
- Furða sig á ummælum bæjarfulltrúa
- Boðið í heimsókn á þjóðarheimili
- Ögmundur gagnrýnir Sjónvarpið
- Samstaða er í skýjunum
- Páll Vilhjálmsson: Sértrúarsöfnuður
- Minni notkun, minna tjón
- Vilja áfram eiga aðild að stjórn lífeyrissjóða
- Erfitt að draga línuna
- Flughált í Flóanum
- Hefur ekki verið vísað til lögreglu
- Hálkublettir víða
- Sjö klukkustundir á sjúkrahús
- Soffía Anna: Lokun líknardeildar
- Maðurinn sætir geðrannsókn
- Eldri borgarar virkir á vinnumarkaði
- 3 nýir áfangastaðir Iceland Express
-
Brotinn en brattur brettakappi
- Þróunarmál rædd af ráðuneytisstjórum
- Margir vilja læra íslensku
- Séreignarsjóður skerðir ekki bætur
- Fundar áfram með Huang Nubo
- Styðja menntun í Úganda
- Lentu óvænt í heimafæðingu
- Samstaða með 21% fylgi
- Peningarnir vaxa á trjánum – fjárfesta í skógum jarðar
- Flughálka á Grindavíkurvegi
- Tillögur skila RÚV auknum tekjum
- Tveir réttindalausir í vímu
- Hælisleitendur laumuðu sér í skip
- Notfæra sér ný réttindi
- Sjóðsfélagar gagnrýndu forystu sjóðsins harðlega
- Flest fylltu sig við Grímsey
- Dæla CO2 aftur ofan í jörðina
- Hótað málsókn 20 sinnum
- 1.600 læra íslensku
- Éljagangur í suðvestanátt
- Aldagamlar hefðir í hættu
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 27. október 2008, Innlent Yfir 53 þúsund undirskriftir
- Fimmtudagur, 23. október 2008, Innlent Yfir 20 þúsund undirskriftir á vef
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Mánudagur, 27. október 2008, Innlent Norðurlönd eiga að styðja Ísland
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
-
Blaðamannafundur Lars Lagerbäck
-
Heimir: Erfiðara að velja Japanshópinn
-
Lagerbäck: Vildi taka þessa áhættu
-
Skart stöðvað á leið úr landi
-
Enn gýs í Eldhringnum
-
Tvær bílasprengjur í Sýrlandi
-
Brotinn en brattur brettakappi
-
Vafasöm ákvörðun í upphafi að nota Gillz




































