Vilja kaupa Sparisjóð Siglufjarðar

Siglufjörður.
Siglufjörður. mbl.is/Einar Falur

Hópur athafnamanna, sem nefna sig Vildarvini Siglufjarðar, hefur lýst yfir áhuga á að kaupa Sparisjóð Siglufjarðar sem á Sparisjóð Skagafjarðar. Fram kom í fréttum Útvarpsins, að fyrir hópnum fari Guðmundur Stefán Jónsson, viðskiptafræðingur í Reykjavík.

Þar kom fram að í hópnum væru líka Róbert Guðfinnsson, sem stýrði Þormóði ramma á Siglufirði um tíma, Ólafur G. Einarsson, fyrrverandi alþingismaður, og Páll Samúelsson, sem áður átti Toyota á Íslandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert