Bretar selja eignir Landsbanka
Eftir Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur MBL Sjónvarpi. tka@mbl.isBjörgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra segir að svo virðist sem Bretar séu að ráðstafa hluta af eignum gamla Landsbankans án vitundar skilanefndar. Hann ætlar að óska eftir skýringum á málinu.
Ráðherrann sagði í viðtali við MBL Sjónvarp í í gær að samningaviðræður við Straum um kaup á hluta af Landsbanka Securities væru órar en fjölmiðlar höfðu þá greint frá slíkum viðræðum. Fréttir um að Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Straums, væri í viðræðum um að kaupa hluta eigna gamla Landsbankans í Bretlandi voru á skjön við yfirlýsingar ráðherrans sem hét á íslenska auðmenn að snúa heim og hjálpa íslensku þjóðinni. Björgvin sagði ennfremur að formaður skilanefndar Landsbankans hefði sagt sér að slíkt væri ekki í farvatninu.
Á sama tíma og viðtalið fór fram kom tilkynning um kaup Straums á hluta eigna verðbréfafyrirtækisins Teathers, sem hét áður Landsbanki Securities.
Teathers er í greiðslustöðvun en kaupin snúa að vörumerki og tilteknum eignum. Í tilkynningu Straums segir stefnt að því að ráða áttatíu starfsmenn en fyrirtækið verður rekið undir eigin merkjum sem útibú Straums í London. Í morgun sagði Björgvin G. Sigurðsson að svo virtist sem þetta hefði verið gert af KPMG í London án vitundar hans og skilanefndar bankans. Þeir hefðu fyrst fengið upplýsingar um málið í dag. Hann segir greinilegt að Bretar telji sig geta ráðstafað þessum eignum en hann setji stórt spurningamerki við það og ætli að óska eftir skýringum.
Skýringin er hins vegar sú, samkvæmt síðari upplýsingum frá viðskiptaráðuneytinu, að ekki er um útibú Landsbankans að ræða, heldur breskt dótturfélag, sem hefur lögsögu þar í landi en ekki á Íslandi. Það fellur því undir umsjón og eftirlit þarlendra yfirvalda.
Straumur hafði samið um kaup á þremur dótturfélögum Landsbankans áður en bankinn fór undir Fjármálaeftirlitið en eitt af þessum félögum var Landsbanki Securities sem áður var starfrækt undir merkjum Teathers & Greenwood og Bridgewell. Samningnum var rift tíu dögum síðar. Á heimasíðu greiningardeildar Kaupþings segir, að riftunin hafi verið jákvæð fyrir Straum þar sem verðið hafi verið nokkuð hátt en ekkert sé gefið upp um kaupverðið á vörumerki Teathers að þessu sinni.Bloggað um fréttina
-
Ásgrímur Hartmannsson Eiga þeir það? -
Haraldur Bjarnason Hryðjuverkalögin leyfa þjófnað -
Fritz Már Jörgensson Siðferði -
Þórður Runólfsson Sendið breska sendiherrann heim. -
Ómar Ragnarsson Vargöld. -
Vilborg Traustadóttir Frekjuhundar -
Salvör Kristjana Gissurardóttir Stríð í skjóli kreppu -
Anna Sigrún Baldursdóttir Hvur rækarlsins röndóttur! -
G. Tómas Gunnarsson Að semja við "hryðjuverkamenn" -
Gunnar Th. Gunnarsson Mér var sparkað út, af Breta -
Gestur Guðjónsson Til íhugunar fyrir Björgúlfana -
Gunnar Þór Gunnarsson Ég sá flottan bíl -
Heidi Strand Krónuathvarf -
Bryndís Svavarsdóttir Ekki spurning að við eigum að lögsækja Breta -
Jóhann Hallgrímsson smá pæling -
Ragnar Borgþórs Er þetta ekki með eindæmum..
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 5. desember 2008, Innlent Eignir Landsbanka geymdar
- Mánudagur, 13. október 2008, Innlent Ábyrgjumst 600 milljarða
- Þriðjudagur, 30. desember 2008, Innlent Togast á um Icesave-kjör
- Fimmtudagur, 16. október 2008, Innlent Hæstbjóðandi fái eignir
- Föstudagur, 19. desember 2008, Innlent Um 150 milljarða bakreikningur
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































