Skemmdir á mannvirkjum við Húsavíkurhöfn

Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri Norðurþings, náði að stökkva klofvega á …
Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri Norðurþings, náði að stökkva klofvega á handrið til að forða sér frá því að blotna þegar ein fyllan kom upp á bryggjuna í Húsavík. mynd/Hafþór Hreiðarsson

Á háflóði í kvöld urðu skemmdir á mannvirkjum við Húsavíkurhöfn, t.a.m á hafnarvog, saltskemmu og fleira. Auk þess sem það flæddi inn í verkstæðishús.

Björgunarsveitin var kölluð út til aðstoðar hafnarverði, lögreglu og eigendum báta og náðu menn m.a. að koma í veg fyrir að nýja flotbryggja skemmdist í soginu sem myndaðist innan hafnarinnar. Sogið var talsvert í höfninni eftir að miklar fyllur komu inn í hana.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert