Ungt fólk þingaði um málefni kirkjunnar
Kirkjuþing unga fólksins var haldið sl. föstudag í Grensáskirkju. Þingfulltrúar voru 15 – 30 ára þátttakendur í æskulýðsstarfi Þjóðkirkjunnar. Þrjú mál lágu fyrir þinginu og snéru þau öll að starfi og þjónustu kirkjunnar. Þau voru rædd út frá sjónarhóli unga fólksins en í þeim hópi eru margir með mikla reynslu af kirkjulegu starfi, segir í tilkynningu.
Eftir framsögur var skipt í þrjár þingnefndir sem ræddu um bænalíf, boðun og þjónustu kirkjunnar. Þrjár ályktanir voru samþykktar og var þeim beint til Kirkjuþings Þjóðkirkjunnar sem hófst þann í gær.
Meðal þess sem Kirkjuþing unga fólksins lagði áherslu á var stuðningur við leiðtoga í æskulýðsstarfi, bæði með því að þjálfa þau í að leiða helgihald og með fleiri námskeiðum um sálgæslu. Rætt var um ýmsa þætti æskulýðsstarfs kirkjunnar. Starfið er þátttakendum yfirleitt að kostnaðarlausu en þó eru stundum dagskrárliðir sem geta kostað eitthvað, svo sem ferðir og mót. Hvatt var til aðgátar hvað þetta varðar í dagskrárgerð og að kirkjur finni úrræði fyrir þau sem eiga erfitt með þátttöku vegna efnahags.
Á þinginu kom einnig fram hvatning til að efla boðun kirkjunnar í framhaldsskólum, með vísan til mikilvægis þess að sjónarmið kirkju og trúar þyrftu einnig að heyrast þar.
Rætt var um helgihald kirkjunnar og hvernig það henti ungu fólki. Minnt var á að bjóða þurfi upp á fjölbreyttara messuform, t.d. bænamessur, léttmessur, poppmessur, æskulýðsmessur, mótorhjólamessur og fleiri slíkar.
Þá lagði þingið til að Þjóðkirkjan marki sér stefnu í æskulýðsstarfi í minni söfnuðum, með það í huga að vinna í samvinnu við sveitarfélögin og stofnanir þess. Einnig var lagt til að kirkjur landsins geti boðið upp á að lána efni bækur, hluti, myndir til notkunar í starfi í öðrum kirkjum í gegnum efnisveitu Þjóðkirkjunnar.
Kirkjuþing unga fólksins skoraði einnig á Þjóðkirkjuna að opna fyrir og fjölga möguleikum ungs fólks að taka þátt í þjónustu og hjálparstarfi.
Bloggað um fréttina
-
Morten Lange Í þínu nafni : boðun kirkjunnar í framhaldsskólum ? -
Svanur Sigurbjörnsson Sóknarfærin hans Karls biskups í fullri sveiflu
Innlent »
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
- Boðuð á fund í Reykjavík
- Skipulagsmálum víða áfátt
- Bleikjueldi ekki háð umhverfismati
- Ekið á stúlku á Akureyri
- Karl biskup í Kenía
- Bjóða brúðhjónunum til Íslands
- Um 65% með leka púða
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 5. nóvember 2009, Innlent Kirkjuþing hefst á laugardag
- Laugardagur, 20. október 2007, Innlent Gagnrýnir tillögu biskups
- Laugardagur, 25. október 2008, Innlent Kirkjuþing í dag
- Laugardagur, 25. október 2008, Innlent Kirkjuþing ræðir fjárfestingar
- Fimmtudagur, 18. október 2007, Innlent Rætt um aðkomu kirkjunnar að staðfestri samvist á kirkjuþingi
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá
-
Steinar Páll: Þetta var mjög gaman
-
Samsteypustjórnin samþykkti skilyrðin




































