Getur ekki annað en lagast
Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is
„Ástandið getur ekki annað en lagast,“ segir Gísli Þórðarson, sauðfjárbóndi í Mýrdal í Kolbeinsstaðahreppi á Snæfellsnesi. „Þetta var ekki beysið þegar við byrjuðum en við höfum alla tíð bundið vonir við að ástandið lagaðist,“ bætir Áslaug Guðbrandsdóttir, kona hans, við.
Afkoma flestra sauðfjárbænda hefur verið heldur slök á undanförnum árum en kúabændur hafa borið sig betur. Bændur binda vonir við að nú kunni fólk betur að meta starf þeirra við að sjá þjóðinni fyrir matvælum og spara dýrmætan gjaldeyri. Á meðan gengið er lágt er samkeppnisstaða innlendu framleiðslunnar betri en hún hefur verið. Á móti koma ýmsar ógnanir, eins og gríðarlegar hækkanir á aðföngum, eins og til dæmis áburði og fóðri, og lánin hækka. Það síðarnefnda á ekki síst við um kúabændur sem hafa verið að fjárfesta í nýjum fjósum, mjaltatækni og kvóta til að nýta aðstöðuna.
„Við höfum verið að stækka við okkur og kaupa kvóta, þannig að við skuldum og finnum fyrir kreppunni. Hér í sveitinni eru líka útgerðarmenn sem skulda mikið,“ segir Guðný Jakobsdóttir, bóndi í Syðri-Knarrartungu í Staðarsveit og formaður Búnaðarsamtaka Vesturlands. Hún og Guðjón Jóhannesson, maður hennar, eru með kúabú.
„Maður heyrir þó meira af erfiðleikum fólks í Reykjavík,“ bætir hún við, „það hefur kannski spennt bogann hærra og þar eru fleiri að missa vinnuna,“ segir Guðný. Hún segir að ekki sé sama óvissan í sveitinni út af atvinnumissi.
Guðjón og Guðný hafa trú á því að íslenskur landbúnaður muni njóta sannmælis í framtíðinni, þegar upp verður staðið eftir erfiðleikatímabilið. „Menn eru að byrja að vakna upp við að það er mikilvægt að eiga íslenskan landbúnað. Ýmsir sem hafa gagnrýnt bændur og landbúnað eru orðnir okkar bestu vinir,“ segir Guðjón. Hann segir að efnahagserfiðleikarnir núllstilli ákveðna hluti sem kannski hafi farið úr böndunum og vonast til að þegar hjólin fari aftur að snúast þá reynist kreppan ekki eins mikil og menn telja nú.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Laugardagur, 5. september 2009, Innlent Krefst heiðarleika af hálfu stjórnvalda
- Fimmtudagur, 11. desember 2008, Innlent Velferðarsjóður á Suðurnesjum
- Föstudagur, 21. ágúst 2009, Innlent Hafa náð botninum og vilja nú upp á við
- Miðvikudagur, 4. júní 2008, Innlent Nýir stúdentshúfusalar seldu nóg
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































