Ber að tilkynna ef hljóðrita á símtöl

stækka

mbl.is/þök

Fjármálafyrirtækjum ber að tilkynna almennum viðskiptavinum ef símtöl þeirra eru hljóðrituð, samkvæmt nýju áliti Póst- og fjarskiptastofnunar. Þetta á þó aðeins við um almenna neytendur sem ætla má að séu ekki eins vel upplýstir um venjur og starfshætti á fjármálamarkaði eins og t.d. fagfjárfestar.

Í tengslum við tilkynningu ónefnds fjármálafyrirtækis til Persónuverndar, þess efnis að fyrirtækið hefði í hyggju að hljóðrita öll símtöl sem það á við viðskiptavini sína án þess að tilkynna þeim sérstaklega um hljóðritunina í upphafi símtals, sá Póst- og fjarskipastofnun (PFS) ástæðu til að gera fyrirtækinu grein fyrir áliti sínu á því hvernig haga skuli hljóðritunum símtala þannig að þær geti talist í fullu samræmi við ákvæði fjarskiptalaga.

Í niðurstöðukafla álitsins kemur fram að það sé mat PFS að hljóðritanir fjármálafyrirtækja falla undir undanþáguákvæði fjarskiptalaga, en þó aðeins þegar um er að ræða viðmælendur sem ótvírætt megi ætla að sé kunnugt um hljóðritunina. Er þar t.d. um að ræða þá viðmælendur sem hafa áður undirritað samning eða skilmála fyrirtækisins, þar sem fram kemur að símtöl eru hljóðrituð, aðila fjármálafyrirtækja og aðra fagfjárfesta. Að mati PFS má ótvírætt ætla að slíkir aðilar séu almennt upplýstir um að símtöl þeirra við fjármálafyrirtæki séu hljóðrituð, enda getur slíkt talist til viðskiptavenja á umræddum markaði. Til að tryggja lögmæti hljóðritananna ber fjármálafyrirtækjum þó að gæta þess að kynna umfang þeirra í ákvæðum viðskiptasamninga sinna, í almennum markaðs- eða viðskiptaskilmálum og heimasíðu sinni.

Þegar hins vegar er um að ræða viðmælendur fjármálafyrirtækja sem falla ekki undir framangreint, til að mynda hinn almenna neytanda sem er ekki eins vel upplýstur um venjur og starfshætti á fjármálamarkaði og fyrrnefndir aðilar, ber fjármálafyrirtækjum, í samræmi við ákvæði fjarskiptalaga, að tilkynna viðkomandi að símtalið sé hljóðritað. Í því sambandi dugar almenn tilkynning á heimasíðu fyrirtækis ekki til að fullnægja áskilnaði laganna um að viðmælanda sé ótvírætt kunnugt um hljóðritunina.

PFS segir að gera verði þá kröfu til fjármálafyrirtækja að starfsmenn þeirra séu upplýstir um framangreinda reglu í lögunum og séu hæfir til að meta í hvaða tilvikum þörf er á að tilkynna viðmælendum sérstaklega um að símtöl séu hljóðrituð.

Að mati Póst- og Fjarskiptastofnunar er með framangreindum hætti komið til móts við rétt allra hagsmunaaðila er máli skipta, þ.e. fjármálafyrirtækja, hins almenna neytanda sem þekkir ekki til venja og aðstæðna á fjármálamarkaði og þeirra aðila sem hafa reynslu og þekkingu á fjármálamarkaði eins og t.d. fagfjárfesta. Þannig er jafnframt tryggt að hljóðritanir fjármálafyrirtækja brjóti ekki gegn stjórnarskrárvörðum réttindum manna um friðhelgi einkalífs.

Lög um fjarskipti

PDF-skrá Álit PFS um hljóðritun símtala við fjármálafyrirtæki
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Labrador hvolpar
Tilbúnir til afhendingar eftir 23.5., ættbókafærðir hjá HRFÍ sem mælir með þess...
Viftur -mikið úrval -tilboð á 12V viftum
Tilboð á vatnskassaviftum. Úrval í stærðum frá 20 til 40 cm. Bæði 12 og 24 Volt....
HÓPFERÐABÍLAR
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU með eða án bílstjóra. --------16 manna-------- --------9...
Toyota Rav 2007
Toyota Rav 2007 ek.74.þús. sjálfskiptur heilsársdekk, nÝ skoðaður 2013 uppl. 69...
 
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...