Utanríkisráðherra gagnrýnir bresk stjórnvöld
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, hefur að sögn breska blaðsins The Independent, sent breskum þingmönnum bréf þar sem hún gagnrýnir bresk stjórnvöld harðlega fyrir aðgerðir þeirra gegn íslensku bönkunum fyrr í þessum mánuði.
Blaðið segir, að í bréfinu fordæmi Ingibjörg Sólrún þá ákvörðun breskra stjórnvalda að beita lögum um varnir gegn hryðjuverkum til að frysta eignir Landsbankans. Þá segir hún að ummæli breskra ráðamanna hafi valdið gríðarlegu tjóni á Íslandi.
Ingibjörg Sólrún sakar bresk stjórnvöld einnig um að vekja upp andúð gegn Íslandi og þar með hættu á að Íslendingar, sem heimsæki Bretland, verði fyrir aðkasti.
„Íslendingar sem þjóð hafa allir verið tjörubornir með sama penslinum og hafa orðið fyrir raunverulegu aðkasti í nokkrum tilfellum," segir í bréfinu að sögn Independent.
Í bréfinu vísar Ingibjörg Sólrún til hryðjuverkalaganna og þess að Landsbankinn var á heimasíðu breska fjármálaráðuneytisins spyrtur saman við al-Qaeda og talibana. Þá hafi aðgerðir Gordons Browns, forsætisráðherra, leitt til þess að viðskipti milli þjóðanna tveggja væru nú afar stirð. „Ég vona að við getum endurreist hin mjög jákvæðu og traustu tengsl Bretlands og Íslands," segir hún síðan.
Austin Mitchell, þingmaður Verkamannaflokksins og formaður þingmannahóps sem sér um samskipti Íslands og Bretlands, segir við Independent að hann hvetji David Miliband, utanríkisráðherra, til að beita sér í málinu.
„Ríkisstjórn okkar hefur beitti afar harkalegum aðgerðum þegar hún fékkst við íslenska vandamálið. Við hefðum átt að rétta fram hjálparhönd en þess í stað fórum við fram með offorsi og gerðum illt verra," segir hann og bætir við að erfitt verði að vinda ofan af yfirlýsingunum.
Blaðið segir að utanríkisráðuneytið fullyrði að enn séu traust tengsl milli NATO-ríkjanna tveggja en ítrekar, að réttmætt hafi verið að beita lögunum umdeildu þegar ógn steðjaði að fjárhagslegu öryggi Breta.
Haft er eftir ráðuneytinu, að Alastair Darling, fjármálaráðherra, hafi fyrirskipað að eignir Landsbankans yrðu frystar eftir að íslenska bankakerfið fékk neyðarlán bæði frá íslenska og sænska seðlabankanum.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 9. janúar 2009, Innlent Væntu of mikils af dómsmáli
- Mánudagur, 12. maí 2008, Innlent Utanríkisráðherra fundaði með breskum ráðamönnum í dag
- Föstudagur, 24. október 2008, Innlent Ágreiningur um lagatúlkun
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
- Fimmtudagur, 22. maí 2008, Innlent Íslendingar eiga marga stuðningsmenn í Eistlandi
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli





































