Fresta rannsóknarborunum að Þeistareykjum
Landsvirkjun, Alcoa og Þeistareykir ehf, hafa í sameiningu ákveðið að fresta rannsóknarborunum að Þeistareykjum um sinn. Þetta er meðal annars gert vegna þess óvissuástands sem ríkir á fjármálamörkuðum. Ákvörðun um framhald borana mun bíða fram til haustsins 2009.
Landsvirkjun, Alcoa og Þeistareykir ehf. hafa unnið sameiginlega að undirbúningi jarðvarmavirkjana á Norðausturlandi vegna orkusölu til fyrirhugaðs álvers Alcoa á Bakka við Húsavík. Þetta samstarf hefur byggst á viljayfirlýsingu milli Landsvirkjunar og Alcoa frá í sumar. Um verkefnið hefur verið náin samvinna við sveitarfélögin Norðurþing, Þingeyjarsveit og Skútustaðahrepp sem lagt hafa fram fjármuni og vinnu í undirbúning þess.
Viljayfirlýsing Landsvirkjunar og Alcoa rennur út nú um mánaðamótin október/nóvember. Í tilkynningu frá fyrirtækjunum segir að þau muni engu að síður hafa náið samband og samráð um framvindu mála með það að leiðarljósi að framlengja viljayfirlýsinguna og halda verkefninu áfram þegar aðstæður leyfa.
Þá segir að viljayfirlýsing milli ríkisstjórnar, Norðurþings og Alcoa standi óbreytt og það sama gildi um viljayfirlýsingu milli Landsnets og Alcoa.
Landsvirkjun, Alcoa, Þeistareykir ehf. og Landsnet munu vinna áfram við mat á umhverfisáhrifum verkefnanna; orkufyrirtækin við mat á umhverfisáhrifum rannsóknaborana og virkjana á Kröflu- og Þeistareykjasvæðinu og Alcoa við mat á umhverfisáhrifum álvers á Bakka og Landsnet vegna flutningslína. Þessi vinna er liður í endanlegu mati á umhverfisáhrifum þessara framkvæmda og sameiginlegu mati á þeim.
Bloggað um fréttina
-
Lára Stefánsdóttir Í hvað verður orkan notuð? -
Gunnar Th. Gunnarsson Enn eitt áfallið -
Ómar Ragnarsson Ekki lengur Þórunni að kenna. -
Sigurjón Benediktsson Meðal annars..... -
Birgir Gunnarsson Þórunn ætti að vera ánægð núna .....
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 20. febrúar 2009, Innlent Áforma að byggja 200 MWe jarðhitavirkjun
- Fimmtudagur, 24. september 2009, Innlent Matsáætlanir vegna virkjana fyrir norðan
- Mánudagur, 15. desember 2008, Innlent Engin ákvörðun um að fresta álveri á Bakka
- Laugardagur, 5. september 2009, Innlent Krefst heiðarleika af hálfu stjórnvalda
- Fimmtudagur, 24. september 2009, Innlent Sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































