Samið við Ekron um ný úrræði fyrir fanga

Frá undirritun samnings Fangelsismálastofnunar og Ekron í dag stækka

Frá undirritun samnings Fangelsismálastofnunar og Ekron í dag mbl.is/Júlíus

„Við lítum svo á að þetta sé mjög mikilvæg endurhæfing fyrir okkar skjólstæðinga svo þeir geti fótað sig í lífinu að lokinni afplánun. Menn sem hafa setið lengi í fangelsi missa gjarnan tengingu við samfélagið. Þarna gefst þeim kostur á að læra atvinnutengda starfsþjálfun og hljóta endurhæfingu,“ segir Páll Winkel forstjóri Fangelsismálastofnunar um nýgerðan samning við áfangaheimilið Ekron um starfsþjálfun fyrir fanga.

Samningur Fangelsismálastofnunar og Ekron var undirritaður í dag. Um er að ræða tilraunaverkefni til sex mánaða og verður samningurinn endurskoðaður að þeim tíma liðnum.

Ekron er sértæk einstaklingsmiðuð atvinnutengd starfsþjálfun og endurhæfing fyrir einstaklinga með skerta vinnufærni sökum afleiðinga af áfengis- og vímuefnasýki. Markmiðið er að aðstoða fólk við að byggja sig upp fyrir framtíðina þannig að það geti tekið virkan þátt í þjóðfélaginu á ný.

„Það er gert ráð fyrir að þarna vistist menn sem eru að ljúka afplánun. Annars vegar að mennn ljúki síðasta hluta afplánunar hjá Ekron og hins vegar að þeir fari í tiltekinn tíma í endurhæfingu hjá Ekron og í framhaldinu ljúki þeir afplánun á áfangaheimili Verndar,“ segir Páll Winkel.

Hann segir að Fanglsismálastofnun muni fara í gegnum það hverjum sé treystandi, út frá öryggissjónarmiðum, til að nýta þetta nýja úrræði. Þá þurfi fulltrúar frá Ekron að samþykkja að taka við viðkomandi fanga.

„Meðan á dvöl hjá Ekron stendur, fylgist fagfólk okkar, sálfræðingur, félagsráðgjafi og fleiri, með viðkomandi fanga, líkt og gert er með þá sem dvelja á Vernd,“ segir Páll winkel.

Gert er ráð fyrir að einn til þrír fangar geti á hverjum tíma nýtt úrræðið.

„Við viljum stíga mjög varlega til jarðar með öll svona ný úrræði en þetta skiptir okkur afar miklu máli. Úrræði líkt og þetta er eitthvað sem hefur sárlega vantað inn í afplánunarferlið, að menn læri að vinna í lok afplánunar, hljóti betrun um leið og þeir taka út refsingu sína,“ segir Páll Winkel.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HUMARHLAÐBORÐ - Hafið Bláa - Velkomin !
Humarhlaðborð öll kvöld frá kl. 18.00 - 21.00 Borðapantanir í síma 483 1000. M...
FUNDARLAUN FYRIR ÞENNANN HÚSBÍL!!!!!!!!!!!!!!!
200 þús. kall fyrir að segja til hvar þennan húsbíl er að finna. nafnaleynd! nú...
Burðarpokar og burðarsjöl www.hondihond.is
Fullt hús af burðarpokum og burðarsjölum. Henta vel fyrir börn frá 0-3 ára. O...
Starcraft Fellihýsi með fortjaldi
Til sölu Starccraft Fellihýsi 9 ft árg 2000 ásamt nýlegu forjaldi ásett verð 69...
 
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...