Kjörvaxtaálag Kaupþings til skoðunar

stækka

mbl.is

Neytendasamtökin hafa sent Neytendastofu erindi til að fá úr því skorið hvort hækkum kjörvaxtaálags á myntkörfulánum Kaupþings standist ákvæði í lögum um neytendalán.

Neytendasamtökin hafa fengið nokkur mál inn á borð til sín þar sem lántakendur halda því fram að þeim hafi ekki verið gerð grein fyrir því að kjörvaxtaálagið gæti hækkað og ekki verið sagt á hvaða forsendum það gæti gerst. Þeir hafi jafnvel ekki vitað að til væri eitthvað sem héti kjörvaxtaálag, enda er hvorki minnst á það í lánasamningi né í gjaldskrá Kaupþings.

Fjallað er um málið á heimasíðu Neytendasamtakanna. Þar segir að Kaupþing hafi hækkað kjörvaxtaálag á myntkörfulánum um 0,8% 1. júlí síðastliðinn. Álagið hafi hækkað á undanförnum tveimur árum um tæp 2%, eða úr tæplega 1% í 2,84%.

Á heimasíðu Neytendasamtakanna er farið yfir útreikninga myntkörfulána og álagningu vaxta. Á síðunni segir að í lögum um neytendalán sé m.a. kveðið á um að lánveitandi skuli skýra neytanda frá því hverjir vextir á láninu eru og við hvaða aðstæður breytingar geta orðið. Þetta vilji lántakendur sem leitað hafi til Neytendasamtakanna meina að hafi ekki verið gert.

„Flestir töldu að óvissan sem tengist myntkörfulánunum væri fyrst og fremst vegna breytinga á millibankavöxtum sem geta hækkað og lækkað allt eftir aðstæðum. Þá fylgir auðvitað gengisáhætta myntkörfulánunum því íslenska krónan verður seint talin með stöðugri gjaldmiðlum.  Áhættan af hinu svokallaða kjörvaxtaálagi kom hins vegar aftan að fólki. Þeir aðilar sem hafa haft samband við Neytendasamtökin halda því fram að þeim hafi ekki verið gerð grein fyrir því að kjörvaxtaálagið gæti hækkað og ekki verið sagt á hvaða forsendum það gæti gerst. Þeir hafi jafnvel ekki vitað að til væri eitthvað sem héti kjörvaxtaálag enda er hvorki minnst á það í lánasamningi né í gjaldskrá Kaupþings,“ segir á heimasíðu Neytendasamtakanna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Porsche Boxster
Til sölu Porsche Boxster Árgerð: 2000 Ekin: 112 þús Flottur og í góðu ástand...
Whippet hvolpar
Hvolpar fæddir 27.04.12 nánari upplýsingar í síma 8603150 og gunnur@simnet.is w...
Flott sjónvarp til sölu!
29 tommu túbu sjónvarp frá Sony til sölu. Það er 8 ára gamalt og í góðu lagi. T...
Til sölu 15" Álfelgur undan Toyotu Avensis "01
Til sölu 15" Álfelgur undan Toyotu Avensis "01 4 stk. Verð 15.000kr. Uppl. í sím...
 
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...