Alvarleg umferðarslys vegna lélegs ástands ökutækja
Að jafnaði eru u.þ.b. 20 þúsund ökutæki í umferð sem ekki hafa verið færð til skoðunar á tilskildum tíma og í einhverjum tilfellum eru á ferð ökutæki sem segja má að séu stórhættuleg vegna ástands þeirra. Samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu hafa orðið alvarleg umferðarslys sem rekja má til ástands ökutækja. Til að stemma stigu við þessa þróun voru samþykkt á Alþingi breytingar á umferðarlögum sem öðluðust gildi 1. október s.l.
„Með breytingum á lögunum eru boðaðar róttækar breytingar sem munu væntanlega leiða til fækkunar á óskoðuðum ökutækjum í umferð. Samkvæmt viðbót við 67. gr. umferðarlaga skal setja á gjald sem rennur í ríkissjóð að fjárhæð 15.000 kr. sem eigandi eða umráðamaður ökutækis skal greiða við almenna skoðun og endurskoðun hafi ökutæki ekki verið fært til skoðunar á réttum tíma.
Heimilt er að lækka gjaldið um allt að 50% verði það greitt innan tiltekins frests eftir að það er lagt á. Einnig má hækka gjaldið um allt að 100% verði það ekki greitt við almenna skoðun eða endurskoðun, sé þess krafist. Gjaldið getur að hámarki orðið 30.000 kr. Umráðamenn ökutækja hafa tvo mánuði upp á að hlaupa frá tilgreindum skoðunarmánuði áður en gjaldið er lagt á," samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu.
Eins og fram hefur komið tóku lögin gildi 1. október en áhrifa þeirra mun ekki gæta fyrr en 1. janúar á næsta ári. Þá munu eigendur og forráðamenn ökutækja sem hafa vanrækt það að færa ökutæki sín til skoðunar í október 2008 þurfa að greiða fyrrnefnt gjald.
Jafnframt er í smíðum reglugerð sem samgönguráðherra setur um skoðun ökutækja en þar er gert ráð fyrir að skoðunartíðni ökutækja sé breytt til samræmis við tilskipun Evrópusambandsins. Sú tilskipun kveður á um það að nýir fólksbílar skuli skoðaðir á fjórða ári og síðan á tveggja ára fresti upp frá því. Einnig er gert ráð fyrir því að hjólhýsi og tjaldvagnar verði skoðunarskyld.
Bloggað um fréttina
-
Einar Bragi Bragason. Engin skoðunarstöð -
Jón Svavarsson Níðingsskapur af verstu tegund !!! -
Bóas Börkur Bóasson klikkað kerfi ! -
Ásgrímur Hartmannsson Klippið frekar. -
Vignir Arnarson Enn og aftur á að ráðast á bifreiðaeigendur með skattlagningu.
Innlent »
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 8. apríl 2009, Innlent Vanrækslugjaldið hefur fært ríkinu tugi milljóna
- Þriðjudagur, 6. janúar 2009, Innlent 42% samdráttur í nýskráningum ökutækja
- Fimmtudagur, 25. september 2008, Innlent Nýskráningum ökutækja fækkar um 27,8%
- Miðvikudagur, 28. október 2009, Innlent Mun fleiri en áður láta geyma bílnúmer
- Mánudagur, 20. október 2008, Innlent Aðeins 50 ökutæki skráð í síðustu viku
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































