Frumvarp um ábyrgðarmenn lagt fyrir Alþingi
Lúðvík Bergvinsson alþingismaður er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Frumvarp um ábyrgðarmenn var lagt fram á Alþingi í dag. Frumvarpið lýtur m.a. að því að mikilvægt að afnema það að þriðji aðili sé gerður ábyrgur fyrir viðskiptum annarra, enda geti afleiðingarnar oft verið fjölskyldum og samfélaginu í heild afar íþyngjandi.
Að frumvarpinu standa þingmenn úr öllum flokkum en fyrsti flutningsmaður er Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar.
Meðal helstu nýmæla í frumvarpinu er að fasteign ábyrgðarmanns, þar sem hann heldur heimili, skal undanþegin aðför og að gjaldþrotaskipta verður ekki krafist á búi ábyrgðarmanns að greindum skilyrðum. Eru þessi nýmæli einskorðuð við persónulegar ábyrgðir en eiga ekki við þegar ábyrgðarmaður veitir sérstaka veðheimild í fasteign sinni. Þess háttar vernd á sér fyrirmynd í rétti annarra þjóða og hefur verið rökstudd með vísan til þeirrar samfélagslegu upplausnar sem fylgir því þegar fjölskylda ábyrgðarmanns á sér ekki lengur samastað.
Þá er í frumvarpinu lögð áhersla á vernd ábyrgðarmanna sem og að tryggja fagleg vinnubrögð við gerð lánasamninga þar sem ábyrgðarmanna er krafist. Í því skyni er mikilvægt að ábyrgðarmaður sé vel upplýstur um þá áhættu sem ábyrgð hans felur í sér. Til að tryggja upplýstar ákvarðanir er t.a.m. í 4. grein frumvarpsins að finna ákvæði er skyldar lánveitanda að ráða ábyrgðarmanni frá því að gangast í ábyrgð ef aðstæður gefa tilefni til þess.Auk Lúðvíks eru meðflutningsmenn formenn þingflokka Sjálfstæðisflokks, Vinstri grænna og Frjálslynda flokksins, formaður Framsóknarflokksins og formenn viðskiptanefndar og efnahags- og skattanefndar.
„Við endurreisn bankakerfisins er mikilvægt að afnema þann séríslenska sið ábyrgðarmannakerfisins að þriðji aðili sé gerður ábyrgur fyrir viðskiptum annarra enda afleiðingarnar oft verið fjölskyldum og samfélaginu í heild afar íþyngjandi,“ að því er segir í tilkynningu.
Bloggað um fréttina
-
Friðrik Hansen Guðmundsson Breytið líka lögum um gjaldþrot einstaklinga -
María Richter Akkurat. -
Kolbrún Jónsdóttir Kominn tími til að taka sér önnur Evrópu lönd til ...
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 31. mars 2009, Innlent Sameinast um að „vinna bug á ósið“
- Föstudagur, 29. maí 2009, Innlent Verðtrygging verði 4% að hámarki
- Föstudagur, 5. desember 2008, Innlent Frumvarp um launalækkun kynnt
- Fimmtudagur, 23. júlí 2009, Innlent Gildandi ábyrgðarmannakerfi námslána afnumið
- Miðvikudagur, 4. mars 2009, Innlent Frumvarp um stjórnarskrárbreytingar
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































