Þórbergssetur hlaut nýsköpunarverðlaun SAF

Fjönir Torfason og Þorbjörg Arnórsdóttur , framkvæmdastjóri Þórbergsseturs ásamt Árna …
Fjönir Torfason og Þorbjörg Arnórsdóttur , framkvæmdastjóri Þórbergsseturs ásamt Árna Gunnarssyni formanni SAF.

Nýsköpunarverðlaun SAF – Samtaka ferðaþjónustunnar 2008 voru afhent á afmælisráðstefnu samtakanna á Hilton Reykjavík Nordica í dag. Menningarsetrið Þórbergssetur, Hala í Suðursveit hlaut verðlaunin að þessu sinni fyrir öfluga uppbyggingu menningartengdrar ferðaþjónustu. 

„Er það álit dómnefndar að Þórbergssetur sé einstaklega vandað framtak fólks úr héraði við uppbygginu menningartengdrar ferðaþjónustu. Setrið er ekki aðeins safn tileinkað einum af merkari rithöfundum þjóðarinnar. Það er einnig lifandi sögusýning á atvinnuháttum og menningu Suðursveitunga gegnum aldirnar og hvernig þeir hafa hagað sinni búsetu í nábýli við óblíða náttúru. Með því að tvinna saman líf og störf rithöfundarins við menningarsögu sveitarinnar, veitist gestum ný sýn á ritverk hans, en einnig ný sýn á líf og störf Íslendinga um aldir gegnum þau sömu ritverk,“ segir í Í rökstuðningi dómnefndar.

Í stefnumótun SAF kemur m.a. fram að stefnt skuli að því að nýsköpun og fagmennska innan greinarinnar tryggi arðsemi allt árið enda byggi ferðaþjónustan á ímynd, gæðum, þekkingu og traustum innviðum.  Auk þess segir að landið allt verði kynnt til eflingar ferðaþjónustu og að náttúra, mannlíf og menning landsins gegni lykilhlutverki.  Hvatt er til aukinnar samvinnu innan greinarinnar til að styrkja enn frekar innviði og efla markaðssetningu landsins sem heildar.  Stjórn sjóðsins tekur tillit til þessara þátta við val sitt.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert