Varnarmál og öryggi landsins ekki gæluverkefni góðærisins
eftir Unu Sigvhatsdóttur una@mbl.is
„ÞAÐ er grundvallarskylda stjórnvalda í hverju ríki að tryggja öryggi borgara sinna. Það er ekki góðærisverkefni frekar en það er góðærisverkefni að halda úti lögreglu eða landhelgisgæslu,“ segir Þórir Ibsen, skrifstofustjóri Varnarmálaskrifstofu. Varnarmálastofnun hefur verið á milli tannanna á fólki allt frá stofnun hennar í janúar 2008.
Nú þegar vænta má niðurskurðar í endurskoðuðum fjárlögum næsta árs gerast þær raddir háværari að stofnunin sé of dýr í rekstri, kostnaður sem hafi verið réttlætanlegur í góðærinu en ekki lengur, en áætlað fjármagn til hennar er um 1,4 milljarðar króna.
Þórir segir að í utanríkisráðuneytinu sé sífellt leitað leiða til að hagræða og gera hlutina með ódýrari hætti, ekki síst á sviði varnarmála. Það eigi ekki síst við nú, þegar þjóðin standi frammi fyrir miklum þrengingum. Viðamesta verkefni Varnarmálastofnunar er rekstur lofteftirlitskerfis NATO hér á landi en utanríkisráðuneytið tók við rekstri þess við brottför varnarliðsins.
Bent hefur verið á að með því að hafa reksturinn á höndum borgaralegra stofnana mætti ná fram sparnaði, t.d. með því að sameina hann starfsemi Flugstoða sem annast flugumferðastjórn. Þórir segir hinsvegar að sá möguleiki hafi verið skoðaður á sínum tíma ásamt öðrum en ekki talinn hagkvæmur. „Það er mikilvægt að átta sig á því að þetta eru ekki sömu verkefni. Okkar hlutverk snýst ekki um að stýra flugi heldur um eftirlit með ókennilegum flugförum sem koma inn í loftrými okkar og samskipti við herstjórnarmiðstöðvar innan bandalagsins.
Hjá Flugstoðum starfar mjög sérhæft starfslið flugumferðarstjóra en starfskraftar okkar eru þjálfaðir öðru vísi. Hjá Ratsjárstofnun, forvera Varnarmálastofnunar sem var kostuð af Bandaríkjunum, vorum við með þessa þekkingu og þjálfað starfsfólk þannig að við nýttum okkur þessa stofnun.“ Hann bendir á að starfsfólki hafi verið fækkað og launakostnaður lækkaður, til samanburðar séu t.d. flugumferðarstjórar Flugstoða mun dýrari starfskraftar á hærri launum.
Bloggað um fréttina
-
Jón Valur Jensson Ætlar Þórarinn V.Þ. Símamaður að gera sig digran á skrifum ...
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 27. nóvember 2007, Innlent Ekkert eftirlit með kafbátum
- Laugardagur, 5. desember 2009, Innlent Fagna lokum Varnarmálstofnunar
- Miðvikudagur, 11. mars 2009, Innlent Varnarmálastofnun hefur boðið samstarf
- Föstudagur, 2. maí 2008, Innlent Formaður SHA sækir um forstjórastarf Varnarmálastofu
- Miðvikudagur, 29. júlí 2009, Innlent Ríkisendurskoðun fer yfir innkaup Varnarmálastofnunar
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































