Fyrirvari um útgreiðslur úr peningamarkaðssjóðum
Talsmaður neytenda hefur í samráði við lögfræðinga ýmissa hagsmunaaðila í peningamarkaðssjóðum lagt til fyrirvara fyrir neytendur vegna taps á sjóðunum og boðað til upplýsingafunda með bönkum og rekstrarfélögum í því skyni að greina réttarstöðu neytenda og leggja mat á tiltæk réttarúrræði.
Talsmaður neytenda lýsir opinberlega eftirfarandi fyrirvara fyrir neytendur sem fengið hafa greiðslur við slit peningamarkaðssjóða, sem neytendum er ráðlagt (og öðrum frjálst) að senda til öryggis hver fyrir sig til þeirra banka og rekstrarfélaga sem eiga í hlut. Fyrirvarinn er svohljóðandi:
„Í tilefni af útgreiðslu úr peningamarkaðssjóðum til neytenda og annarra handhafa hlutdeildarskírteina í viðskiptum við Glitni, Kaupþing og Landsbankann er lýst þeim fyrirvara að útgreiðslan feli í sér hlutagreiðslu vegna inneignar neytenda í sjóðunum en ekki fullnaðaruppgjör.
Í ljósi óvissu um réttarstöðu neytenda í þessu sambandi er áskilinn þeim til handa réttur til skuldajöfnunar sem nemur allt að mismun á inneign miðað við stöðu sjóðanna 26. september 2008 annars vegar og útgreiðslufjárhæð hins vegar. Skuldajöfnun er lýst gagnvart íbúðarlánum sem flust hafa til nýju bankanna, er tóku yfir réttindi og skyldur gömlu bankanna í kjölfar svonefndra neyðarlaga nr. 125/2008, og eftir atvikum gagnvart öðrum lánum sem yfirtekin hafa verið með sama hætti.
Einnig er gerður áskilnaður um skaðabótarétt til handa neytendum sem handhöfum hlutdeildarskírteina vegna fjárfestinga sjóðanna miðað við kynningu þeirra og gildandi fjárfestingarstefnu, vegna rýrnunar þeirra eftir tilkynningu áætlaðrar ríkisvæðingar Glitnis 29. september sl., vegna verðmats þeirra í kjölfar þess að lög nr. 125/2008 voru sett 6. október sl. og vegna annarra atvika sem kunna að leiða til skaðabótaábyrgðar banka eða rekstrarfélags; ekki liggur fyrir að verðmatið og kaup úr sjóðunum hafi verið á markaðslegum forsendum milli óskyldra aðila auk þess sem handhöfum hlutdeildarskírteina var ekki boðið að kaupa undirliggjandi eignir á jafnræðisforsendum.“
Sl. mánudag var haldinn fundur um réttarstöðu neytenda og eftir atvikum annarra í kjölfar útgreiðslu úr peningamarkaðssjóðum bankanna um sl. mánaðamót.
Fram kemur á vef talsmanns neytenda að sammæli hafi virst vera á fundinum um eftirfarandi:
- Ýmislegt er enn óljóst og erfitt er að meta - a.m.k. til hlítar - réttarstöðu og réttarúrræði án frekari upplýsinga um málsatvik og eftir atvikum skýringa á þeim, svo sem um samsetningu sjóðanna og breytingar á henni vikurnar fyrir svonefnd neyðarlög og atvik í kjölfarið, svo sem varðandi verðmat; á meðan er a.m.k. erfitt að ráðleggja neytendum næstu skref.
- Meðan óvissa varir er eðlilegt að ráðleggja neytendum (og eftir atvikum öðrum) að gera fyrirvara við bankana eða rekstrarfélög á þeirra vegum í kjölfar útgreiðslu úr peningamarkaðssjóðum.
Nánari upplýsingar er að finna á vef talsmanns neytenda.





































