Jón Ásgeir ætti að vera hættur
Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is
Jón Ásgeir Jóhannesson ætti þegar að hafa vikið úr stjórnum hlutafélaga, að mati Áslaugar Björgvinsdóttur, dósents við Háskólann í Reykjavík. Ákvæði í hlutafélagalögum séu ótvíræð, sá sem hljóti dóm fyrir brot á nánar tilgreindum lögum missi þegar í stað hæfi sitt til stjórnarsetu.
Þótt Jón Ásgeir hefði átt að víkja úr stjórnum félaganna, segir Áslaug að stjórnarseta hans hafi engin áhrif á gildi þeirra ákvarðana sem stjórnirnar hafa tekið frá því dómur í Baugsmálinu var kveðinn upp.
Páll Ásgrímsson héraðsdómslögmaður vakti athygli á því í aðsendri grein í Morgunblaðinu í gær, að Jón Ásgeir sæti í stjórnum 13 hlutafélaga, samkvæmt samantekt Creditinfo Ísland. Í hlutafélagalögum væri á hinn bóginn lagt blátt bann við því að menn sem hefðu hlotið dóm fyrir brot á nánar tilgreindum lögum sitji í stjórnum hlutafélaga. Páll sagði undarlegt að skv. frétt Viðskiptablaðsins frá 6. nóvember teldi Skúli Jónsson, forstöðumaður Hlutafélagaskrár, að Jón Ásgeir gæti setið í stjórn fyrirtækis fram að næsta aðalfundi. Þessi skoðun ætti sér ekki stoð í lögum, hlutafélagaskrá gæti ekki búið til nýjar reglur og skoraði Páll á Hlutafélagaskrá að grípa til aðgerða.
Áslaug Björvinsdóttir segir ákvæði 64. og 66. greinar hlutafélagalaga vera skýr. Stjórnarmaður megi ekki hafa hlotið dóm á síðustu þremur árum. Hljóti hann dóm missi hann um leið hæfi sitt til að sitja í stjórnum fyrirtækja. Því beri honum að víkja úr stjórninni þegar í stað. Sé varamaður í stjórninni eigi hann að taka sæti í hans stað. Í vissum tilvikum megi bíða með að kjósa nýjan aðalmann í stjórn þar til á næsta aðalfundi.
Áslaug bendir á að samkvæmt hlutafélagalögum hvíli sú skylda á stjórnarmönnum að sjá til þess að skipulag og starfsemi félagsins sé ávallt í samræmi við lög, þ.á m. að stjórnarmenn fullnægi almennum hæfisskilyrðum samkvæmt 66. grein laganna hverju sinni og bregðast þá þegar við í samræmi við 64. grein komi sú staða upp að stjórnarmaður missi almennt hæfi sitt.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 19. nóvember 2008, Innlent Umræða rak eftir athugasemd Hlutafélagaskrár
- Laugardagur, 29. nóvember 2008, Innlent Jón Ásgeir enn í einni stjórn
- Föstudagur, 6. júní 2008, Innlent Jón Ásgeir þarf að víkja úr stjórn Baugs
- Mánudagur, 17. nóvember 2008, Innlent Sýnist Jón Ásgeir hafa framið nýtt lagabrot
- Þriðjudagur, 18. nóvember 2008, Innlent Segir sig úr fleiri stjórnum
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































