Dauður hundur og fornbíll

Börn leika sér í bryndrekanum. stækka

Börn leika sér í bryndrekanum.

Embætti ríkislögreglustjóra gerir enn á ný athugsemdir við fréttir DV og dv.is. Á vef embættisins í dag segir m.a. að DV hafi birt myndir af hundinum Skolla, sem drapst í ársbyrjun 2006 og hann kynntur sem starfandi valdbeitingarhundur. Þá fjalli blaðið í dag um 27 ára gamlan fornbíl undir fyrirsögninni: Bryndreki löggunnar tilbúinn í óeirðirnar.

Athugasemd ríkislögreglustjóra er eftirfarandi: 

„Embætti ríkislögreglustjóra hefur að undanförnu þurft að gera athugasemdir við tilhæfulausan fréttaflutning DV og dv.is um að lögreglan sé að „vígbúast gegn fólki“, eins og slegið var upp á einni forsíðunni. Því var haldið fram að verið væri að útbúa 6 nýja óeirðabíla fyrir lögregluna og breyta stætisvagni í fjarskiptamiðstöð. Ríkislögreglustjóri sagði þessa umfjöllun uppspuna og benti jafnframt á að lögreglan ætti ekki valdbeitingarhunda né notaðist við rafbyssur í störfum sínum. Áfram var þó haldið og birtar myndir af hundinum Skolla sem drapst í ársbyrjun 2006 og hann kynntur sem starfandi valdbeitingarhundur.

Óheimilt er að þjálfa eða taka í notkun hund til valdbeitingar nema að fengnu leyfi embættis ríkislögreglustjóra samkvæmt reglum þar um. Embættið hefur ekki veitt slík leyfi.

Í DV í dag er einnig fjallað um 27 ára gamlan fornbíl sem lögreglunni í Reykjavík áskotnaðist fyrir um tveimur áratugum frá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli. Forsíðufyrirsögnin er „Bryndreki löggunnar tilbúinn í óeirðirnar. Falinn á bak við byrgða glugga inni í skemmu í Hvalfirði”.

Fornbílnum sem um er fjallað og er af gerðinni Chrysler Ram, árgerð 1981, hefur ekki verið breytt frá upprunalegri mynd nema hvað byssufestingar á þaki voru fjarlægðar fyrir rúmum áratug og sett á bílinn ljós og sírena. Hann er því ekki útbúinn til óeirða, en getur gagnast við vopnaðar aðgerðir lögreglu. Fornbíllinn hefur aðallega verið notaður sem æfingatæki og sýningargripur fyrir almenning, svo sem á sögusýningu lögreglunnar árið 2003, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum."

Embætti ríkislögreglustjóra

Börn að leik í bryndrekanum.

Börn að leik í bryndrekanum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Sumarhúsalóðir í Kjósinni
Til sölu sumarhúsalóðir í landi Möðruvalla 1 (Norðurnes) í Kjós. Nánari upplýsin...
Til sölu kerrur
Til sölu þrjár kerrur, þar af ein lokuð farangurskerra. Smíðaðar úr ryðfríu stál...
Létt á líkama - létt í lund. Hefst 24.5.
4ra vikna lokaður átakshópur fyrir þig sem vilt breyta um lífsstíl. Ekkert auk...
Hænsnahús til sölu
Til sölu heimili fyrir landnámshænur. Einangrað og klætt að innan. Varpkassar og...
 
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....