Lenti hlaðin sprengiefni á Íslandi
Eftir Guðrúnu Hálfdánardóttur guna@mbl.isRússnesk flugvél lenti á Keflavíkurflugvelli með 27 tonn af sprengiefni í septembermánuði. Íslensk flugmálayfirvöld vissu ekki hvað væri um borð í vélinni fyrr en hún var lent. Meðal þess sem var um borð voru jarðsprengjur en Ísland er meðal þeirra ríkja sem hefur lagt bann við notkun jarðsprengja. Gerðist þetta á sama tíma og varnaræfingin Norður-Víkingur fór fram hér á landi í byrjun september. Æfingin hefur farið fram árlega og er hluti af varnarsamningi við Bandaríkjamenn og viðauka sem gerður var í tengslum við brottflutning hersins héðan.
Samkvæmt heimildum mbl.is hafði áhöfn vélarinnar samband við flugturn og óskaði eftir lendingarleyfi á Íslandi þar sem vélin væri tæp á eldsneyti. Þegar flugturn óskaði eftir upplýsingum um farm vélarinnar fengust ekki fullnægjandi skýringar og því fór flugturn fram á frekari upplýsingar. Þær voru ekki veittar. Það þótti hins vegar nauðsynlegt að heimila áhöfn vélarinnar að lenda henni hér á landi þar sem vélin var eldsneytislítil.
Vélin var látin lenda á öðru svæði heldur en því þar sem farþegavélar lenda en samkvæmt heimildum mbl.is var það tilviljun að það var gert þar sem vélin var skráð sem fragtvél.
Þegar íslenskir eftirlitsaðilar fóru um borð í vélina kom í ljós að í farmi hennar voru 27 tonn af sprengiefni en vélin var ekki merkt sem herflugvél og hafði ekki skilgreint sig sem slíka þegar óskað var eftir lendingarleyfi, samkvæmt heimildum mbl.is.
Samgönguráðuneytið, sem fer með forræði yfir Keflavíkurflugvelli óskaði ekki eftir því að vélin yrði kyrrsett og fór hún því frá landinu hlaðin sprengiefni.
Bloggað um fréttina
-
Þóra Guðmundsdóttir Hvert var flugvélin að fara og hvaðan kom hún? -
Markús frá Djúpalæk Volaða land -
Jón Aðalsteinn Jónsson Hvað er í lestinni. -
Ásgrímur Hartmannsson Þeir notuðu nú allmikið sprengiefni -
Vésteinn Valgarðsson "Farið varlega" -
Ólafur Ragnarsson Fór hún með allan farminn burt??? -
Benedikt V. Warén Hvar var "Air force" hennar hátignar?? -
Árni Viðar Björgvinsson Lenti hlaðin sprengiefni... og hvað með það? -
Axel Jóhann Hallgrímsson Hvað er málið? -
Gunnar Vel tímasett frétt -
Haraldur Bjarnason ..og hvað með það?
Innlent »
- Börnin uppgötva undraheima Legó
- Evrópusambandið kynnir sig sjálft
- SUF vill draga ESB-umsóknina til baka
- Vilja efla siðferði í stjórnmálum
- Enginn með einkarétt á Samstöðu
-
Yrði öðruvísi biskup
- Handteknir fyrir að keyra á mann
- Hefur hátt í fangaklefa
-
Martröð í matarboði
- Leikstjórinn kom inn sem ljón
- Fjöruverðlaun eftir viku
- Enn skelfur við Grímsey
- Opið á skíðasvæðum
- Fíkniefnasali handtekinn
- Braut rúðu í lögreglubíl
Laugardagur, 11.2.2012
- „Ég er í skýjunum“
- „Mjög sérstök tilfinning“
- Jónsi og Greta til Bakú
- Úrslitakeppnin hafin í Hörpu
- Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka
- Fjör á 112-deginum á Húsavík
- Hvessir af suðri seint í kvöld
- Ekki hika – hringdu til öryggis
- Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti
- Möguleikar nýju framboðanna
- Enginn flótti af Y-lista
- Iðnaðarmaður ræsti brunaboða
- Búðarþjófur ógnaði starfsmanni
- Börn grétu vegna útigangsmanna
- Fangar reyna oft að ná í fíkniefni
- Slökkt á meðan Kolaportið er opið
- Skjálftahrina við Grímsey
- Öskureið út í Pál Óskar
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum fyrir norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 20. júlí 2009, Innlent Vél United lent
- Sunnudagur, 27. júlí 2008, Innlent Sneri við og lenti í Keflavík
- Föstudagur, 29. ágúst 2008, Innlent Bilun í vökvabúnaði þotu Icelandair
- Fimmtudagur, 30. apríl 2009, Innlent Sprakk á tveimur aðalhjólum
- Mánudagur, 30. júní 2008, Innlent Ekki hætta á ferðum
-
Léttist um rúmlega 60 kíló
-
Lítilli stúlku bjargað úr snjóflóði
-
Aron: Frábær vörn og markvarsla
-
Fólk víða að minnist Houston
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
-
Yrði öðruvísi biskup
-
Lík Houston flutt af hótelinu
-
Whitney Houston látin




































